Hönnun - Útboð - Miðgarður 2. hæð útleiga á rými
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (964). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu valnefndar um útleigu rýmis í Miðgarði, þess efnis að gengið verði til samningaviðræðna við Sjúkraþjálfun Garðabæjar um útleigu rýmisins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2180). fundur
Minnisblað valnefndar um útleigu 600 fermetra rýmis á 2. hæð í Miðgarði kynnt. Farið var yfir störf nefndarinnar sem yfirfór innsend gögn frá áhugasömum aðilum, kynningar þeirra og fundaði með þeim aðilum sem sýndu rýminu og rekstri í því áhuga.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu valnefndar um útleigu rýmis í Miðgarði, um að gengið verði til samningaviðræðna við Sjúkraþjálfun Garðabæjar um útleigu rýmisins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
11. (2159). fundur
Lögð fram opnun tilboða vegna útboðsins Miðgarður, aðstaða fyrir heilsueflandi starfsemi. Engin formleg tilboð bárust.
Bæjarráð samþykkir að fela valnefnd vegna útboðsins að ræða við þá aðila sem sýnt höfðu verkefninu áhuga og kallað eftir upplýsingum um útboðið til þess að skoða grundvöll útleigu rýmisins.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (2157). fundur
Bæjarráð tilnefnir Hrannar Braga Eyjólfsson, Hörpu Rós Gísladóttur og Brynju Dan Gunnarsdóttur, til að sitja í valnefnd vegna útleigu rýmis á 2. hæð í Miðgarði.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
36. fundur
Samþykkt hefur verið að bjóða út u.þ.b. 600m2 svæði á 2. hæð í Miðgarði undir heilsutengda starfsemi.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 11. febrúar að bjóða út 600 fm svæði á 2. hæð Miðgarðs undir heilsutengda starfsemi. ÍTG fagnar því að unnið sé eftir tillögum ráðsins að nýtingu á óinnréttaða rými annarrar hæðar í Miðgarði.
Bæjarráð Garðabæjar
06
6. (2154). fundur
Lagðir fram útboðs- og samningsskilmálar Miðgarðs vegna aðstöðu fyrir heilsueflandi starfsemi - útleigu rýmis á 2. hæð.
Í hliðarrýmum sunnan megin í Miðgarði eru tvær óráðstafaðar hæðir sem eru um 1.500 fm. hvor um sig. Þar er fyrirhugað að starfrækt verði heilsutengd starfsemi.
Fyrirliggjandi drög að útboðslýsingu er samkvæmt tillögum sem mótaðar voru af íþrótta- og tómstundaráði í kjölfar ábendinga sem kallað var eftir í samráðsgátt bæjarins 2022.
Bæjarráð vísar framkvæmd útboðsins til umhverfissviðs, sem nýtur liðsinnis VSÓ ráðgjafar við útboðsferlið. Bæjarráð mun tilnefna valnefnd útboðsins.