32. (2180). fundur
32. (2180). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.09.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Menningardagskrá haust 2025
Ólöf Breiðfjörð, menningarfulltrúi Garðabæjar, mætti á fund bæjarráðs og kynnti menningardagskrá í Garðabæ fyrir haustið 2025.
Fylgiskjöl
02
Hönnun - Útboð - Miðgarður 2. hæð útleiga á rými
Minnisblað valnefndar um útleigu 600 fermetra rýmis á 2. hæð í Miðgarði kynnt. Farið var yfir störf nefndarinnar sem yfirfór innsend gögn frá áhugasömum aðilum, kynningar þeirra og fundaði með þeim aðilum sem sýndu rýminu og rekstri í því áhuga.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu valnefndar um útleigu rýmis í Miðgarði, um að gengið verði til samningaviðræðna við Sjúkraþjálfun Garðabæjar um útleigu rýmisins.
Fylgiskjöl
03
Íbúafundir - haust 2025
Kynning á fyrirhuguðum íbúafundum sem haldnir verða á vegum Garðabæjar í september. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Miðgarði þann 10. september 2025 klukkan 19:30. Annar fundurinn verður haldinn í Urriðaholtsskóla þann 17. september 2025 klukkan 19:30. Þriðji fundurinn verður haldinn í Álftanesskóla þann 24. september 2025 klukkan 19:30.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun: "Um 7% íbúa Garðabæjar eru af erlendum uppruna og líklegt er að íslenskukunnátta sé mjög misjöfn þeirra á meðal. Garðabæjarlistinn leggur til að íbúafundir verði einnig auglýstir á ensku, eða að haldinn verði sérstakur enskumælandi íbúafundur."
04
Bréf Stígamóta um framlag til starfsemi Stígamóta 2026, dags. 01.09.25.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.
05
Bréf Kvennathvarfsins um rekstrarstyrk fyrir árið 2026, dags. 05.09.25.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.
06
Bréf SSH um samning við Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, dags. 01.09.25
Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu dags. 1. september 2025 varðandi drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins vegna áranna 2026-2028.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2026-2028 og að fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.