Samningur sveitarfélaga - Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins - 2026-2028
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (964). fundur
Bæjarstjórn samþykkir samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2026-2028 og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2180). fundur
Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu dags. 1. september 2025 varðandi drög að sameiginlegum samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins vegna áranna 2026-2028.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samning sveitarfélaganna Garðabæjar, Hafnarfjarðarkaupstaðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2026-2028 og að fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.