Beint í efni

12. (964). fundur

18.09.2025
Bæjarstjórn Garðabæjar

12. (964). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

18.09.2025

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - 2. varaforseti
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins. Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði. Fundargerð bæjarstjórnar frá 9. september 2025 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2509006F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 9/9'25.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 2.tl. hönnun - útboð - Miðgarður 2.hæð útleiga rýmis.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 3.tl. íbúafundi - haust 2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Um 7% íbúa Garðabæjar eru af erlendum uppruna og líklegt er að íslenskukunnátta sé mjög misjöfn þeirra á meðal. Garðabæjarlistinn leggur til að íbúafundir verði einnig auglýstir á ensku, eða að haldinn verði sérstakur enskumælandi íbúafundur."

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 2.tl. hönnun - útboð - Miðgarður 2.hæð útleiga rýmis.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2025 og 2.tl. hönnun - útboð - Miðgarður 2.hæð útleiga rýmis.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. hönnun - útboð - Miðgarður 2.hæð útleiga rýmis.

Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2025.

Björg Fenger ræddi 1.tl. menningardagskrá haust 2025, 2.tl. hönnun - útboð - Miðgarður 2.hæð útleiga rýmis og 3.tl. íbúafundi - haust 2025.

Almar Guðmundsson ræddi íbúafundi - haust 2025.

Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2509021F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 16/9'25.

Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að innritun í leikskóla Garðabæjar haustið 2025 hafi gengið afar vel. Börn fædd í október 2024 og fyrr hafa nú þegar fengið boð um leikskólavist, sem sýnir að markviss stefna bæjarins í leikskólamálum er að skila árangri.

Á undanförnum árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt ríka áherslu á að efla leikskólastarf í bænum meðal annars með auknu framboði leikskólarýma og sveigjanleika ásamt því að efla enn frekar faglegt starf skólanna. Bæjarfulltrúar þakka starfsfólki og stjórnendum leikskólanna fyrir þeirra mikilvæga og góða starf sem unnið er leikskólum bæjarins."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóli 3. áfangi - skoðunarferð.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.

Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2509005F

03

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 4/9'25.

Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. dagskrá fyrir skólahópa 2025-2026.

Björg Fenger ræddi 6.tl., skapandi sumarstörf 2025 og 1.tl. dagskrá fyrir skólahópa 2025-2026.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 5.tl. Sinfó í sundi.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2508025F

04

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 3/9'25.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi fundargerðina og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Við í Framsókn fögnum því að mönnun hafi gengið vel víða á frístundaheimilum í grunnskólum Garðabæjar og að öll börn eða rúmlega 240 séu komin með pláss á frístundaheimili Urriðaholtsskóla, stærsta frístundaheimili Garðabæjar.

Við viljum leggja áherslu á hversu mikilvægt er að tryggja mönnun annarra frístundaheimila í bænum sem fyrst svo samræmi verði í þjónustu við börn og fjölskyldur sem enn bíða eftir að mönnun náist.

Að auki teljum við í Framsókn mikilvægt að hefja sem fyrst undirbúning þess að halda hér í Garðabæ úti öflugu sumarfrístundastarfi byggðu á grunni starfseminnar yfir skólaárið með svipuðu fyrirkomulagi og þekkist í mörgum ef ekki flestum öðrum sveitarfélögum landsins.

Miklir hagsmunir eru í húfi og sumarfrístund er liður í bættri þjónustu við börn og barnafjölskyldur sem rímar vel við þá stefnu sem Garðabær hefur sett sér og innleitt um að vera barnvænt samfélag.“

Almar Guðmundsson ræddi fundagerðina og 5.tl. námsmat í grunnskólum.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. ársskýrslur grunnskóla 2024-2025 og 3.tl. reglur um símanotkun í grunnskólum Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2509018F

05

Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 16/9'25.

Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. starfsemi skólans 2025-2026, 2.tl. niðurstöður á heildarúttekt tónlistarskólans, 3.tl. fyrirhugaða stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar og niðurstöður hönnunarvinnu og þarfagreiningu skólans, 4.tl. gervigreindarstefnu Garðabæjar og fundargerðina.

Almar Guðmundsson ræddi 3.tl. fyrirhugaða stækkkun Tónlistarskóla Garðabæjar og niðurstöður á hönnunarvinnu og þarfagreiningu skólans.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2509008F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 10/9'25.

Stella Stefánsdóttir ræddi 1.tl. veitumál í Garðabæ, 2.tl. mengunarmælingar 2025, 3.tl. umhverfishópa 2025, 4.tl. evrópska samgönguviku 2025 og 5.tl. tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 2.tl., mengunarmælingar 2025.

Ingvar Arnarson ræddi 2.tl., mengunarmælingar 2025.

Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. mengunarmælingar 2025 og 1.tl. veitumál í Garðabæ.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2507022F

07

Fundargerð öldungaráðs frá 15/9'25.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 1.tl., þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl., þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.

Almar Guðmundsson ræddi 1.t., þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 1.tl., þjónustu við fólk sem bíður eftir hjúkrunarrými.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501149

08

Fundargerðir stjórnar SSH frá 18/8'25 og 1/9'25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi fundargerð frá 1. september 2025, 2.tl. málefni fatlaðra - fjármögnun málaflokks.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerð frá 1. september 2025, 2.tl. málefni fatlaðra - fjármögnun málaflokks.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2501405

09

Fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 18/6'25 og 18/8'25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi fundargerð frá 18. júní 2025, 1.tl. ESA-málið og 3.tl. uppbyggingu bráðabirgðaendurvinnslustöðvar við Glaðheima og fundargerð frá 18. ágúst 2025, 5.tl. undirbúningsfélag um byggingu hátæknibrennslu.

Björg Fenger ræddi fundargerð frá 18. júní 2025, 1.tl. ESA-málið.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi fundargerð frá 18. júní 2025, 1.tl. ESA-málið.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2509139

10

Fundargerð eigendafundar SORPU bs. frá 18/8'25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502251

11

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 15/8'25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2509297

12

Tillaga um ókyngreinda búningsaðstöðu

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu:

"Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra í samvinnu við fræðslu- og frístundasvið að koma fyrir ókyngreindri búningsaðstöðu (sérklefa) í Ásgarðslaug.

Bæjarstjórn fagnar jafnframt þeirri ókyngreindu aðstöðu sem nú er unnið að við sundlaugina á Álftanesi.

Greinargerð

Mikilvægt er að allir hópar samfélagsins okkar geti notið sundlauga Garðabæjar. Vöntun hefur verið á sérstökum ókyngreindum klefum bæði í sundlauginni í Ásgarði og á Álftanesi, en slíka klefa notar t.a.m. kynsegin fólk og annað fólk sem ekki vill eða getur nýtt hefðbundna kvenna- og karlaklefa.

Aukið aðgengi að sérklefum þar sem engra útskýringa er krafist við notkun hefur gefið góða raun víða og getur einnig nýst fleiri hópum, til að mynda fjölskyldum sem þurfa að fylgjast að óháð kyni.



Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks

Guðlaugur Kristmundsson, bæjarfulltrúi Viðreisnar

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans

Brynja Dan Gunnardóttir tók til máls.

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2509298

13

Tillaga um úttekt á breyttu fyrirkomulagi sumarnámskeiða

Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu:

"Bæjarstjórn felur fræðslu- og frístundasviði að gera úttekt á breyttu fyrirkomulagi sumarnámskeiða og meta hvernig það hefur gengið. Einnig verði framkvæmd sérstök greining á nýjum mögulegum útfærslum, meðal annars til að tryggja samfellu í starfinu síðustu tvær vikurnar fyrir skólabyrjun í ágúst, með hliðsjón af kostnaði og sjónarmiðum um mönnun. Úttektin liggi fyrir í lok október og verði nýtt við vinnu við næstu fjárhagsáætlun."

Greinargerð:

Á síðustu árum hefur verið ráðist í breytingar á fyrirkomulagi sumarnámskeiðastarfs í bænum með það að markmiði að auka aðgengi, breikka þjónustuúrval og tryggja samfellu í þjónustu fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og 9-12 ára innan dags og frá skólaslitum að skólasetningu. Margt hefur áunnist en mikilvægt er að greina hvernig nýtt fyrirkomulag hefur reynst, bæði hvað varðar þátttöku, þjónustustig og nýtingu fjármuna, og draga lærdóm af þeirri reynslu.

Slík úttekt þarf jafnframt að skoða mögulegar nýjar leiðir í skipulagi sumarnámskeiða, meðal annars hvort og hvernig unnt sé að halda úti öruggara framboði af námskeiðum starfi síðustu tvær vikurnar fyrir skólabyrjun í ágúst. Þær vikur hafa reynst krefjandi hvað varðar mönnun og kostnað, en jafnframt mikilvægur tími fyrir fjölskyldur. Með því að meta bæði reynsluna af breytingunum og útfæra raunhæfa valkosti fram í tímann verður hægt að taka upplýsta ákvörðun við gerð fjárhagsáætlunar 2026.

Sumarnámskeiðahald er mikilvægt fyrir fjölskyldur þar sem hún gerir foreldrum kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf, styrkir félagsfærni barna og tryggir öruggt og skipulagt umhverfi á meðan langt sumarhlé stendur yfir. Frjáls félög og dugmiklir aðilar á fjölbreyttum sviðum hafa reynst fjölskyldum og sveitarfélaginu góður samstarfsaðili á þessu sviði. Með úttektinni er ætlunin að meta árangur breytinganna og leggja fram raunhæfar tillögur til framtíðar með hliðsjón af þjónustuþörf, kostnaði og mönnun.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins

Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn er samþykkur því að úttekt verði gerð á núverandi fyrirkomulagi, en mun eftir sem áður leggja til við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 að í boði verði einnig sumarfrístundastarf á vegum frístundaheimilanna við grunnskóla Garðabæjar líkt og þekkist í nágrannasveitarfélögum, með áherslu á júní og ágúst."

Almar Guðmundsson tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Tillagan er samþykkt samhljóða.