Beint í efni

Sumarnámskeið barna 2026.

Málsnúmer 2509298

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

8. (2203). fundur

Guðbjörg Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti minnisblað um stöðu sumarnámskeiða í Garðabæ sumarið 2025 og áform um breytingar fyrir sumarið 2026.

Unnið er með það að markmiði að fjölbreytt sumarnámskeið ýmissa félaga í bænum spanni allar vikur sumarsins og að áfram fjölgi heilsdags námskeiðum. Veittur verður viðbótarstuðningur til nokkurra félaga til að gera þeim kleift að halda úti námskeiðum í ágúst rétt fyrir skólabyrjun. Að auki mun starfsemi frístundaheimila hefjast viku fyrir skólabyrjun fyrir börn í 2.bekk, til viðbótar við börn í 1.bekk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

12. (964). fundur

Hrannar Bragi Eyjólfsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu:

"Bæjarstjórn felur fræðslu- og frístundasviði að gera úttekt á breyttu fyrirkomulagi sumarnámskeiða og meta hvernig það hefur gengið. Einnig verði framkvæmd sérstök greining á nýjum mögulegum útfærslum, meðal annars til að tryggja samfellu í starfinu síðustu tvær vikurnar fyrir skólabyrjun í ágúst, með hliðsjón af kostnaði og sjónarmiðum um mönnun. Úttektin liggi fyrir í lok október og verði nýtt við vinnu við næstu fjárhagsáætlun."

Greinargerð:
Á síðustu árum hefur verið ráðist í breytingar á fyrirkomulagi sumarnámskeiðastarfs í bænum með það að markmiði að auka aðgengi, breikka þjónustuúrval og tryggja samfellu í þjónustu fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og 9-12 ára innan dags og frá skólaslitum að skólasetningu. Margt hefur áunnist en mikilvægt er að greina hvernig nýtt fyrirkomulag hefur reynst, bæði hvað varðar þátttöku, þjónustustig og nýtingu fjármuna, og draga lærdóm af þeirri reynslu.
Slík úttekt þarf jafnframt að skoða mögulegar nýjar leiðir í skipulagi sumarnámskeiða, meðal annars hvort og hvernig unnt sé að halda úti öruggara framboði af námskeiðum starfi síðustu tvær vikurnar fyrir skólabyrjun í ágúst. Þær vikur hafa reynst krefjandi hvað varðar mönnun og kostnað, en jafnframt mikilvægur tími fyrir fjölskyldur. Með því að meta bæði reynsluna af breytingunum og útfæra raunhæfa valkosti fram í tímann verður hægt að taka upplýsta ákvörðun við gerð fjárhagsáætlunar 2026.
Sumarnámskeiðahald er mikilvægt fyrir fjölskyldur þar sem hún gerir foreldrum kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf, styrkir félagsfærni barna og tryggir öruggt og skipulagt umhverfi á meðan langt sumarhlé stendur yfir. Frjáls félög og dugmiklir aðilar á fjölbreyttum sviðum hafa reynst fjölskyldum og sveitarfélaginu góður samstarfsaðili á þessu sviði. Með úttektinni er ætlunin að meta árangur breytinganna og leggja fram raunhæfar tillögur til framtíðar með hliðsjón af þjónustuþörf, kostnaði og mönnun.

Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Ingvar Arnarson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn er samþykkur því að úttekt verði gerð á núverandi fyrirkomulagi, en mun eftir sem áður leggja til við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 að í boði verði einnig sumarfrístundastarf á vegum frístundaheimilanna við grunnskóla Garðabæjar líkt og þekkist í nágrannasveitarfélögum, með áherslu á júní og ágúst."

Almar Guðmundsson tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Tillagan er samþykkt samhljóða.