Fundargerð bæjarráðs frá 16/9'25.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
12. (964). fundur
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að innritun í leikskóla Garðabæjar haustið 2025 hafi gengið afar vel. Börn fædd í október 2024 og fyrr hafa nú þegar fengið boð um leikskólavist, sem sýnir að markviss stefna bæjarins í leikskólamálum er að skila árangri.
Á undanförnum árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt ríka áherslu á að efla leikskólastarf í bænum meðal annars með auknu framboði leikskólarýma og sveigjanleika ásamt því að efla enn frekar faglegt starf skólanna. Bæjarfulltrúar þakka starfsfólki og stjórnendum leikskólanna fyrir þeirra mikilvæga og góða starf sem unnið er leikskólum bæjarins."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóli 3. áfangi - skoðunarferð.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl., stöðu innritunar og yfirlit starfsemi leikskóla Garðabæjar og 8.tl. Urriðaholtsskóla 3. áfanga - skoðunarferð.
Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.