Beint í efni

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 3/9'25.

Málsnúmer 2508025F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (964). fundur

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi fundargerðina og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Við í Framsókn fögnum því að mönnun hafi gengið vel víða á frístundaheimilum í grunnskólum Garðabæjar og að öll börn eða rúmlega 240 séu komin með pláss á frístundaheimili Urriðaholtsskóla, stærsta frístundaheimili Garðabæjar.
Við viljum leggja áherslu á hversu mikilvægt er að tryggja mönnun annarra frístundaheimila í bænum sem fyrst svo samræmi verði í þjónustu við börn og fjölskyldur sem enn bíða eftir að mönnun náist.
Að auki teljum við í Framsókn mikilvægt að hefja sem fyrst undirbúning þess að halda hér í Garðabæ úti öflugu sumarfrístundastarfi byggðu á grunni starfseminnar yfir skólaárið með svipuðu fyrirkomulagi og þekkist í mörgum ef ekki flestum öðrum sveitarfélögum landsins.
Miklir hagsmunir eru í húfi og sumarfrístund er liður í bættri þjónustu við börn og barnafjölskyldur sem rímar vel við þá stefnu sem Garðabær hefur sett sér og innleitt um að vera barnvænt samfélag.“

Almar Guðmundsson ræddi fundagerðina og 5.tl. námsmat í grunnskólum.

Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 1.tl. ársskýrslur grunnskóla 2024-2025 og 3.tl. reglur um símanotkun í grunnskólum Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.