Beint í efni

Tillaga um ókyngreinda búningsaðstöðu

Málsnúmer 2509297

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (964). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram svohljóðandi tillögu:

"Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra í samvinnu við fræðslu- og frístundasvið að koma fyrir ókyngreindri búningsaðstöðu (sérklefa) í Ásgarðslaug.
Bæjarstjórn fagnar jafnframt þeirri ókyngreindu aðstöðu sem nú er unnið að við sundlaugina á Álftanesi.

Greinargerð
Mikilvægt er að allir hópar samfélagsins okkar geti notið sundlauga Garðabæjar. Vöntun hefur verið á sérstökum ókyngreindum klefum bæði í sundlauginni í Ásgarði og á Álftanesi, en slíka klefa notar t.a.m. kynsegin fólk og annað fólk sem ekki vill eða getur nýtt hefðbundna kvenna- og karlaklefa.
Aukið aðgengi að sérklefum þar sem engra útskýringa er krafist við notkun hefur gefið góða raun víða og getur einnig nýst fleiri hópum, til að mynda fjölskyldum sem þurfa að fylgjast að óháð kyni.

Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks
Guðlaugur Kristmundsson, bæjarfulltrúi Viðreisnar
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans

Brynja Dan Gunnardóttir tók til máls.
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Tillagan er samþykkt samhljóða.