Beint í efni

36. fundur

12.02.2025
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

36. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

12.02.2025

Kl. - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
  • Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 2301082

01

Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026

Kynning á aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.

Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði, sat fundinn undir þessum lið og kynnti aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026.

Málsnúmer 2502102

02

Hönnun - Útboð - Miðgarður 2. hæð útleiga á rými

Samþykkt hefur verið að bjóða út u.þ.b. 600m2 svæði á 2. hæð í Miðgarði undir heilsutengda starfsemi.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 11. febrúar að bjóða út 600 fm svæði á 2. hæð Miðgarðs undir heilsutengda starfsemi. ÍTG fagnar því að unnið sé eftir tillögum ráðsins að nýtingu á óinnréttaða rými annarrar hæðar í Miðgarði.

Málsnúmer 1808087

03

Framkvæmdir - Miðgarður - fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri

Samkomulag við ÍAV vegna ágreinings um ábyrgð vegna gervigrass í Miðgarði.

Lagt var fram til kynningar samkomulag við ÍAV vegna ágreinings um ábyrgð vegna gervigrass í Miðgarði.

Málsnúmer 2409477

04

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024

Hulda Hauksdóttir kynnir helstu niðurstöður þjónustukönnunar Gallúp 2024 sem snúa að málefnum ÍTG.

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, kynnti helstu niðurstöður þjónustukönnunar Gallúp meðal íbúa í Garðabæ. Ánægja með þjónustu Garðabæjar ríkir á meðal íbúa í bænum. 86% sögðust ánægðir með aðstöðu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu. Garðabær stendur vel í samanburði við önnur sveitarfélög og er talsvert yfir meðaltali í langflestum liðum.

Málsnúmer 2502161

05

Aðgangstölur í sund

Heildar aðsókn í almenningssundlaugar Garðabæjar árið 2024 var 254.795 heimsóknir borið saman við 220.771 heimsókn árið 2023. Aukning um 47.470 eða +15,41%.

Opnunartími í Álftaneslaug var lengdur árið 2024 á virkum dögum til klukkan 22:00 til samræmis við Ásgarðslaug.

Heimsóknir í Álftaneslaug eftir klukkan 19:00 jukust úr 8.185 í 13.446 yfir árið, eða +64,28%.

Samantekt á aðsóknartölum sundlauganna í Ásgarði og á Álftanesi.

Heildar aðsókn í almenningssundlaugar Garðabæjar árið 2024 var 254.795 heimsóknir borið saman við 220.771 heimsókn árið 2023. Aukning um 47.470 eða 15,41%.

Opnunartími í Álftaneslaug var lengdur árið 2024 á virkum dögum til klukkan 22:00 til samræmis við Ásgarðslaug.

Heimsóknir í Álftaneslaug eftir klukkan 19:00 jukust úr 8.185 í 13.446 yfir árið, eða 64,28%.

Málsnúmer 2502019

06

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Gunnar Þór Heimisson GKG.

ÍTG bendir umsækjendum á reglur um afreksstyrki. Í gr. 3.3. kemur fram að íþróttafélög geta sótt um afreksstyrki, sbr. 5. mgr. 4. gr. Sem fjallar um úthlutunarreglur afreksstyrkja. Samkvæmt reglunum þarf íþróttafélag viðkomandi íþróttamanns að sækja um afreksstyrk. Umsókn er hafnað á grundvelli þessara ákvæða. Næsta úthlutun afreksstyrkja er í september 2025.

Málsnúmer 2502001

07

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir dansparið Nikita Bazev og Hönnu Rún Óladóttur Bazev DÍH.

ÍTG samþykkir afreksstyrk að upphæð 2 x 300.000,- til DÍH fyrir dansparið Nikita Bazev og Hönnu Rún Óladóttur Bazev.

Málsnúmer 2501566

08

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Herdísi Björg Jóhannsdóttur hestakonu úr Spretti.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Spretts fyrir Herdísi Björg Jóhannsdóttur kr. 100.000,-

Málsnúmer 2501565

09

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Huldu Maríu Sveinbjörnsdóttur hestakonu úr Spretti.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Spretts fyrir Huldu Maríu Sveinbjörnsdóttur kr. 100.000,-

Málsnúmer 2501549

10

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Anítu Dís Atladóttur og Aron Davíð Óskarsson sem dansa saman samkvæmisdansa hjá Dansfélag

Reykjavíkur.

ÍTG bendir umsækjendum á reglur um afreksstyrki. Í gr. 3.3. kemur fram að íþróttafélög geta sótt um afreksstyrki, sbr. 5. mgr. 4. gr. Sem fjallar um úthlutunarreglur afreksstyrkja. Samkvæmt reglunum þarf íþróttafélag viðkomandi íþróttamanns að sækja um afreksstyrk. Umsókn er hafnað á grundvelli þessara ákvæða. Næsta úthlutun afreksstyrkja er í september 2025.

Málsnúmer 2501509

11

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk fyrir Gabríelu Einarsdóttur Klifurkonu Klifurfélagi Reykjavíkur.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Klifurfélags Reykjavíkur fyrir Gabríelu Einarsdóttur kr. 225.000,-

Málsnúmer 2501452

12

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk til Þórdísar unnar Bjarkadóttur bogfimikonu úr Boganum.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Bogans fyrir Þórdísi Unni Bjarkadóttur kr. 225.000,-

Málsnúmer 2501432

13

Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Umsókn um afreksstyrk til Gunnlaugs Árna Sveinssonar kylfings úr GKG.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til GKG fyrir Gunnlaug Árna Sveinsson kr. 300.000,-

Málsnúmer 2412255

14

Miðdeildarstarf félgsmiðstöðva grunnskkóla

Tvær nýjar félagsmiðstöðvar hófu göngu sína um áramótin, í Flataskóla og í Hofsstaðaskóla. Í báðum skólum hefur verið stopult miðdeildarstarf sem nú hefur verið sett í fastari skorður með tryggu fjármagni til rglulegrar starfsemi á hvorum stað. Náin samvinna er við frístund barna á hvorum stað til að manna opnanir. Fagleg aðstoð er frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla.

ÍTG fagnar því að tvær nýjar félagsmiðstöðvar hófu göngu sína um áramótin, í Flataskóla og í Hofsstaðaskóla. Náin samvinna er við frístund barna á hvorum stað til að manna opnanir. Fagleg aðstoð er frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla.

Sex félagsmiðstöðvar eru starfræktar innan grunnskóla Garðabæjar. Þær voru þrjár í upphafi kjörtímabils.

Garðalundur í Garðaskóla, Elítan í Álftanesskóla, Klakinn í Sjálandsskóla, Urri í Urriðaholtsskóla, Fjaran í Flataskóla, Dropinn í Hofsstaðaskóla. Að auki er Garðahraun frístund fyrir fatlaða einstaklinga í 5.-10. bekk.

Einnig gert ráð fyrir ungmennahúsi í fjárhagsáætlun fyrir 2025.

Málsnúmer 2202488

15

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Kynning á breytingum á deiliskipulagi í Vetrarmýri og golfvelli GKG

Kynning á breytingum á deiliskipulagi í Vetrarmýri og golfvelli GKG