Miðdeildarstarf félgsmiðstöðva grunnskkóla
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
36. fundur
Tvær nýjar félagsmiðstöðvar hófu göngu sína um áramótin, í Flataskóla og í Hofsstaðaskóla. Í báðum skólum hefur verið stopult miðdeildarstarf sem nú hefur verið sett í fastari skorður með tryggu fjármagni til rglulegrar starfsemi á hvorum stað. Náin samvinna er við frístund barna á hvorum stað til að manna opnanir. Fagleg aðstoð er frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla.
ÍTG fagnar því að tvær nýjar félagsmiðstöðvar hófu göngu sína um áramótin, í Flataskóla og í Hofsstaðaskóla. Náin samvinna er við frístund barna á hvorum stað til að manna opnanir. Fagleg aðstoð er frá félagsmiðstöðinni Klakanum í Sjálandsskóla.
Sex félagsmiðstöðvar eru starfræktar innan grunnskóla Garðabæjar. Þær voru þrjár í upphafi kjörtímabils.
Garðalundur í Garðaskóla, Elítan í Álftanesskóla, Klakinn í Sjálandsskóla, Urri í Urriðaholtsskóla, Fjaran í Flataskóla, Dropinn í Hofsstaðaskóla. Að auki er Garðahraun frístund fyrir fatlaða einstaklinga í 5.-10. bekk.
Einnig gert ráð fyrir ungmennahúsi í fjárhagsáætlun fyrir 2025.