Jafnakur 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram að nýju tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Akra að lokinni grenndarkynningu. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að funda með umsækjanda og þeim sem athugasemd gerðu.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43. (2050). fundur
Á fundinum komu fram nánari upplýsingar og áform lóðarhafa varðandi hellulagt svæði meðfram húshlið en það mun ekki verða nýtt sem bifreiðastæði.
Bæjarráð vísar málinu að nýju til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir því að bílastæðum á lóðinni Jafnakur 7 fjölgi úr þremur í fjögur.
Athugasemd sem barst í grenndarkynningu lögð fram en í henni segir að búið sé að útfæra bílastæði sem sé meðfram allri vesturhlið hússins og sé útfærslan því ekki í samræmi við grenndarkynnta tillögu sem gerir ráð fyrir bílastæði við götu.
Skipulagsnefnd þykir einsýnt að fjölgun bílastæða á lóð í deiliskipulagi geti stuðlað að því að lóðarhafar leggi stóra hluta lóða undir bílastæði sem hefur neikvæð áhrif á yfirbragð hverfisins.
Skipulagsnefnd hafnar tillögunni.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
12. (908). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að fjölga bílastæðum á lóðinni við Jafnakur 7 úr þremur í fjögur. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Jafnakri 5, 6 og 8 og Hjálmakri 6 og 8. (Mál nr. 2206114)
Bæjarráð Garðabæjar
05
32. (2039). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar um að heimilað verði að fjölga bílastæðum á lóðinni við Jafnakur 7 úr þremur í fjögur. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum og íbúum að Jafnakri 5, 6 og 8 og Hjálmakri 6 og 8.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að bílastæðum á lóð fjölgi úr þremur í fjögur. Samkvæmt tillögu myndi að vera staðsett við lóðarmörk að Jafnakri 5.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Jafnakri 5,6 og 8 sem og Hjálmakri 6 og 8.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
08
8. fundur
Lögð fram óveruleg breyting deiliskipulags Akra sem samþykkt var í bæjarstjórn 18.desember 2008. Vegna hnökra sem urðu á frágangi málsins í framhaldi af samþykktinni hlaut breytingin ekki staðfestingu með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda. Samkomulagi lóðareigenda var þinglýst í maí 2008. Ástæða þessarar breytingar voru mistök sem urðu við útmælingu hússins. Bæði hús hafa þegar verið reist og lóðarfrágangur er í samræmi við deiliskipulagsbreytinguna og samkomulagið.
Breytingin gerir ráð fyrir að lóðarmörk milli Jafnakurs 7 og 5 færist um 1,5 m til vestur og byggingarreitur á lóðinni nr.7 stækkar um 1,5 m til vesturs og 0,5 m til suðurs. Lóð nr.7 stækkar því um 27 m2 og er því fyrir breytingu 813 m2 en eftir breytingu 840m2. Lóð nr. 5 minnkar að sama skapi um 27 m2 og er fyrir breytingu 704 m2 en eftir breytingu 677 m2.
Skipulagsstjóri samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga. 2.ml.3.mgr.44.gr.sömulaga er grenndarkynning felld niður enda varða breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafa.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.