Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um könnun meðal leik- og grunnskólakennara þar sem lagt er mat á starfsumhverfi, líðan og starfskjör.

Málsnúmer 2106361

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (1981). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga Garðabæjarlistans.

„Bæjarráð felur fræðslu- og menningarsviði að láta gera könnun meðal leik- og grunnskólakennara í leik- og grunnskólum Garðabæjar þar sem kallað verður eftir mati á starfsaðstæðum, líðan í starfi og afstöðu til starfskjara.“

Greinargerð

Nú þegar menntastefna Garðabæjar er til endurskoðunar er ekki úr vegi að fá fram mat leik- og grunnskólakennara á starfsaðstæðum, líðan í starfi og afstöðu til starfskjara. Framúrskarandi skólastarf byggir á öflugu fagfólki sem aftur byggir á vellíðan í starfi. Garðabær vill bjóða upp á framúrskarandi skólastarf og við endurskoðun menntastefnu sveitarfélagsins er við hæfi að rýna í starfsumhverfi, líðan og starfskjör þessa mikilvæga hóps. En ekki er síður mikilvægt að ná fram eins og hægt er hvaða áhrif óvenjuleg starfsskilyrði sem sköpuðust við glímuna við heimsfaraldurinn Covid 19 hefur haft.

Bæjarstjóri upplýsti um að á vegum Garðabæjar hafa reglulega verið gerðar kannanir meðal leik- og grunnskólakennara þar sem lagt er mat á starfsumhverfi og líðan.

Könnunin Skólapúlsinn var síðast lögð fyrir í mars 2020 og verður aftur lögð fyrir í mars 2022 þar sem kannað er m.a. annars starfsaðstæður og líðan í starfi en að undanskildum starfskjörum enda eru þau afgreidd á öðrum vettvangi. Leikskólafulltrúi er að undirbúa að leggja fyrir könnun í haust meðal skólastjórnenda leikskóla um áhrif styttingar vinnuvikunnar á starfsumhverfi skólanna í samstarfi við mannauðsstjóra

Þá hefur Dr. Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri, sent starfsfólki Garðabæjar beiðni um þátttöku í rannsókninni „Heilsa, líðan og starfstengd viðhorf starfsfólks íslenskra sveitarfélaga“ og snérust fimm spurninganna um áhrif Covid-19 á störf þess.

Bæjarstjóri lagði til að vísa framkominni tillögu til fræðslu- og menningarsviðs til að leggja mat á hvort ástæða sé til að hafa viðbótarspurningar til að kanna nánar hvaða áhrif óvenjuleg starfsskilyrði sem sköpuðust við glímuna við heimsfaraldurinn Covid 19 hefur haft.

Tillaga bæjarstjóra samþykkt.