Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir lagningu göngustígs um Ungmennafélagslund á Vífilsstöðum.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (1981). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lagningu göngustígs um Ungmennafélagslund á Vífilsstöðum. Framkvæmdin er á svæði þar sem ekki er fyrir hendi deiliskipulag.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyri gerð göngustígs frá stíg við Vífilsstaðaveg austan gamla Vífilsstaðafjóssins um svokallaðan Ungmennafélagslund að barnaskóla Hjallastefnunnar. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu en nauðsynlegt er að ráðast í gerð stígsins til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, ekki síst nemenda í barnaskólanum.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis til bráðabirgða í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd leggur til að tækni-og umhverfissvið Garðabæjar undirbúi lagningu göngustígs frá Barnaskólanum að golfskála GKG sem þveri Vífilsstaðaveg á öruggan hátt.