Kynning á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (1981). fundur
Á fund bæjarráðs mættu Hildigunnur Árnadóttir, umsjónarfélagsráðgjafi og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði. Gerðu þær grein fyrir aðdraganda að setningu laga um samþættingu þjónustu í þagu farsældar barna og þeim megin markmiðum sem stefnt er að með gildistöku laganna. Lögin taka gildi 1. janúar 2022 en hefja þarf undirbúning að innleiðingu þeirra strax í haust.
Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi, Guðrún Hrefna Sverrisdóttir, félagsráðgjafi í barnavernd og Berglind B. Sveinbjörnsdóttir, ráðgjafi í barnavernd, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Björg Fenger, bæjarfulltrúi, tengdist fundinum undir þessum dagskrárlið með fjarfundarbúnaði.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
4. fundur
Lagt er fyrir mál nr. 2101289, frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (farsældarfrumvarp), til kynningar og umræðu.
Tekið er fyrir mál nr. 2101289, frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (farsældarfrumvarp). Fjölskylduráð fjallar um efni frumvarpsins og fyrirhugaðar breytingar á málaflokki barna hjá sveitarfélögum. Fjölskylduráð fagnar tilkomu frumvarpsins sem stuðlar að samfellu í þjónustu við börn og snemmtækum íhlutunum.