Beint í efni

4. fundur

17.03.2021
Fjölskylduráð Garðabæjar

4. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

17.03.2021

Kl. 16:00 - 17:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Eymundur Sveinn Einarsson - varamaður
  • Kristinn Guðlaugsson - varamaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Snædís Björnsdóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2012375

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Lagt er fyrir mál nr. 2012375, umsókn um námsstyrk á vorönn 2021.

Tekið er fyrir mál nr. 2012375, umsókn um námsstyrk á vorönn 2021. Umsókn er samþykkt. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2103059

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð trygging húsaleigu

Lögð eru fyrir mál nr. 2102530 og nr. 2103059, umsóknir um tryggingu húsaleigu og húsbúnaðarstyrk.

Tekin eru fyrir mál nr. 2102530 og nr. 2103059, umsóknir um tryggingu húsaleigu og húsbúnaðarstyrk. Umsóknir um tryggingu húsaleigu og húsbúnaðarstyrk eru samþykktar. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2101387

03

Barnaverndarmál

Lagt er fyrir mál nr. 2101387 til upplýsinga um ráðstöfun barnaverndar á grundvelli 31. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.

Tekið er fyrir mál nr. 2101387, fjölskylduráð upplýst um beitingu neyðarráðstöfunar og takmörkun aðgengis að gögnum máls. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1903268

04

Tölulegar upplýsingar og rannsóknir í barnavernd og fjárhagsaðstoð 2018-2021

Lagðar eru fyrir tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð.

Tekið er fyrir mál nr. 1903268, tölulegar upplýsingar er varða velferð barna og fjölskyldna. Fjallað var um málið og helstu upplýsingar.

Málsnúmer 2101289

05

Frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna

Lagt er fyrir mál nr. 2101289, frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (farsældarfrumvarp), til kynningar og umræðu.

Tekið er fyrir mál nr. 2101289, frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (farsældarfrumvarp). Fjölskylduráð fjallar um efni frumvarpsins og fyrirhugaðar breytingar á málaflokki barna hjá sveitarfélögum. Fjölskylduráð fagnar tilkomu frumvarpsins sem stuðlar að samfellu í þjónustu við börn og snemmtækum íhlutunum.