Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framkvæmdaleyfi fyrir göngustíg við Garðakirkjugarð.
Málsnúmer 2103104
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
23. (1981). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir göngustíg neðan kirkjugarðs Garðakirkju og að Garðavör. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyri gerð göngustígs neðan kirkjugarðsins í Görðum og að Garðavör.
Lega stígsins og gerð er í samræmi við deiliskipulag Garðahverfis.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.