16. (2211). fundur
16. (2211). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
05.05.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2604014
01
Golfklúbbur GKG - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar kt. 650394-2089 leyfi til breytinga á innra skipulagi íþróttamiðstöðvar við Vífilstaðaveg.
Málsnúmer 2603058
02
Útholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brútus ehf., kt. 560824-0170, leyfi til byggingar á parhúsi að Útholti 1.
Málsnúmer 2603057
03
Útholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Brútus ehf., kt. 560824-0170, leyfi til byggingar á parhúsi að Útholti 3.
Málsnúmer 2107272
04
Maríugata 5 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Bjargi íbúðarfélagi hses., kt. 490916-0670, leyfi fyrir svalalokun á svalagangi 5. hæðar að Maríugötu 5.
Málsnúmer 2512147
05
Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið.
Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess.
Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu.
Leitast er við að nýjar byggingar falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til.
Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
Málsnúmer 2010078
06
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 30. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
- Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
- Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
- Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja.
- Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
- Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
- Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
- Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
- Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
- Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
- Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
- Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
- Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
- Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
- Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
- Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m².
- Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
- Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
- Kvöðum um fornleifar er breytt.
- Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
- Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.
Skipulagsnefnd lagði til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4.
- Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús)
- Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni.
Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2603238
07
Opnun tilboða í verkið "Sláttur og hirðing í Garðabæ 2026-2028".
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Sláttur og hirðing í Garðabæ 2026-2028":
Útboðssvæði 1:
1. Garðlist ehf., kr. 17.538.999.
2. Garðaþjónusta Sigurjóns ehf., kr. 17.671.536.
Kostnaðaráætlun, kr. 29.041.320.
Útboðssvæði 2:
1. Garðlist ehf., kr. 10.944.887.
2. Garðaþjónusta Sigurjóns ehf., kr. 9.639.212.
Kostnaðaráætlun kr. 17.446.808.
Útboðssvæði 3:
1. GGÞ ehf., kr. 8.841.728.
2. Garðlist ehf., kr. 9.383.284.
3. Garðaþjónusta Sigurjóns ehf., kr. 5.526.080.
Kostnaðaráætlun kr. 11.052.160.
Útboðssvæði 4 - grasmanir:
1. Garðlist ehf., kr. 14.308.093.
2. Garðaþjónusta Sigurjóns ehf., kr. 10.861.906.
Kostnaðaráætlun kr. 14.764.632..
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Garðlistar ehf., að fjárhæð kr. 17.538.999 í útboðssvæði 1.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Garðaþjónustu Sigurjóns ehf., að fjárhæð kr. 17.671.536 í útboðssvæði 2.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Garðaþjónustu Sigurjóns ehf., að fjárhæð kr. 5.526.080 í útboðssvæði 3.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Garðaþjónustu Sigurjóns ehf., að fjárhæð kr. 10.861.906 í útboðssvæði 4 - grasmanir.
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2604558
08
Útboð - Ásgarður - Nýr gervigrasvöllur.
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á nýjum gervigrasvelli við Ásgarð.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2501543
09
Endurnýjun gatna og lagna í Garðabæ.
Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu ástandsgreininga og framkvæmdaáætlun vegna endurnýjunar gatna og lagna í Garðabæ.
Málsnúmer 2604583
10
Grænigarður - viðræður við eigendur.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við eigenda Grænagarðs um möguleg kaup bæjarins á lóðinni Grænagarð við Garðaveg ásamt húsnæði á lóðinni.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga til samningaviðræðna við eigendur Grænagarðs um möguleg kaup á eigninni.
Málsnúmer 2504403
11
Kæra Verkvals ehf. vegna útboðs Garðabæjar, ástandsmat fráveitu, hreinsun og myndun
Lagður fram úrskurður Kærunefndar útboðsmála í máli nr. 9/2025 - Verkval ehf. gegn Garðabæ þar sem kærandi krafðist þess að felld yrði úr gildi ákvörðun Garðabæjar um að meta tilboð hans ógilt og til vara að kærunefnd léti upp álit sitt á skaðabótaskyldu Garðabæjar gagnvart Verkvali ehf.
Úrskurðarorð kærunefndar voru á þá leið að öllum kröfum kæranda, Verkvals ehf., í málnu var hafnað.
Málsnúmer 2502547
12
Niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ 2026.
Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti niðurstöður íbúaþings eldra fólks í Garðabæ sem haldið var í Sjálandi 11. mars 2026.
Málsnúmer 2603502
13
Minnisblað um samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Garðabæ.
Lagt fram minnisblað vegna samtals um samþættingu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu, tengt verkefninu "Gott að eldast".
Málsnúmer 2604584
14
Sumarstörf í Garðabæ 2026
Lagt fram minnisblað um Sumarstörf í Garðabæ 2026, en alls hafa 271 ráðning í sumarstörf verið settar í ráðningarferli með ráðningum á stofnanir bæjarins.
Málsnúmer 2604560
15
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga fyrir dansíþróttaviðburð í Mýrinni.
Í umsókninni er farið fram á tímabundið áfengisleyfi fyrir Íþróttahúsið Mýrina vegna dansíþróttaviðburðar dagana 13. til 14. júní 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 2604536
16
Boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands, NTÍ þann 21.05.26.
Lagt fram ársfundarboð Náttúruhamfaratrygginga Íslands, sem haldinn verður fimmtudaginn 21. maí 2026.
Málsnúmer 2604463
17
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til loftslagslaga, 595 mál, dags. 24.04.26.
Lagt fram.