Hönnun - Útboð - Hreinsun og myndun lagna
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2211). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti stöðu ástandsgreininga og framkvæmdaáætlun vegna endurnýjunar gatna og lagna í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
03
17. (2165). fundur
Við mat á hæfiskröfum við val á tilboði skv. 66.gr. laga um opinber innkaup nr. 120-2016, kom í ljós að lægstbjóðandi uppfyllti ekki hæfisskilyrði útboðsins. Næstlægst bjóðandi var Aval ehf. með tilboð að fjárhæð kr. 25.910.966.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði næst lægstbjóðanda Aval ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
04
12. (2160). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í hreinsun og myndun lagna:
Aval ehf. kr. 25.910.966
Verkval ehf. kr. 22.211.620
Hreinsitækni ehf. kr. 26.872.570
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkval ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.