Beint í efni

Samningur um Bláfjallarútuna.

Málsnúmer 2102118

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

6. (1964). fundur

Bæjarráð samþykkir samning við Teit Jónasson ehf. um áætlunarakstur að skíðasvæðum höfuðborgarsvæðisins. Samningurinn er ótímabundinn með sex mánaða uppsagnafresti.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

28. fundur

Samið hefur verið við Teit Jónasson ehf um að "Skíðarútan" hafi stoppistöð við Ásgarð daglega á leið sinni upp í Bláfjöll þegar opið er á skíðasvæðinu. Komið er við hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Flatahrauni 14, í Mjódd og Olís við Rauðavatn.
Ekið er eftir rútáætlun Skíðasvæðanna sjá. https://skidasvaedi.is/upplysingar/rutuaaetlun/ og er Flatahraun endastöð í ferðum frá Bláfjöllum. Brottför virka daga verður 15:30 og komið heim um 22:00. Um helgar 12:00 og komin heim um 18:00

Unnið er að samningum við Teit Jónasson ehf um að "Skíðarútan" hafi stoppistöð við Ásgarð daglega á leið sinni upp í Bláfjöll þegar opið er á skíðasvæðinu. Komið er við hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Flatahrauni 14, í Mjóddinni og Olís við Rauðavatn.
Ekið er eftir rútuáætlun Skíðasvæðanna sjá. https://skidasvaedi.is/upplysingar/rutuaaetlun/ og yrði Flatahraun endastöð í ferðum frá Bláfjöllum. Brottför virka daga yrði 15:40 og komið heim um 22:00. Um helgar yrði brottför 12:10 og komið heim um 18:00