23. (1884). fundur
23. (1884). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu
18.06.2019
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1902222
01
Uppbygging í Vetrarmýri - kynning á stöðu verkefnis.
Á fund bæjarráðs mættu Anna Sigríður Arnardóttir og Gísli Reynisson starfsmenn Fasteignaþróunarfélagsins Spildu ehf. og gerðu grein fyrir tillögum og hugmyndum um uppbyggingu í Vetrarmýri.
Bæjarfulltrúarnir Björg Fenger og Harpa Þorsteinsdóttir, sátu fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1803438
02
Landakot 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóhanni Jónssyni, kt. 140963-2759, leyfi til að byggja kvisti og svalir við núverandi hús að Landakoti.
Málsnúmer 1905225
03
Sjónarvegur 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sjónarvegi 1-3 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að breyta um klæðning útveggja fjölbýlishússins að Sjónarvegi 1-3.
Málsnúmer 1905224
04
Sjónarvegur 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sjónarvegi 1-3 ehf., kt. 540416-0440, leyfi til að breyta um klæðning útveggja fjölbýlishússins að Sjónarvegi 1-3.
Málsnúmer 1906097
05
Jafnréttisáætlun Garðabæjar - endurskoðun.
Bæjarráð samþykkir að fela fjölskylduráði að hefja undirbúning að endurskoðun jafnréttisáætlun Garðabæjar í samræmi við 12. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
Málsnúmer 1904349
06
Tillaga skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar um gjaldskrá skólaárið 2019 - 2020.
Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 1903163
07
Opnun tilboða í umsjón og eftirlit með verkframkvæmdum við fjölnota íþróttahús.
Eftirfarandi tilboð bárust.
VSÓ Ráðgjöf kr. 43.625.455
Efla kr. 49.624.450
Strendingur kr. 38.961.000
Lota kr. 42.594.130
Hnit kr. 41.850.000
Mannvit kr. 40.628.600
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda, Strendings ehf., með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 10 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906114
08
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um boðun XXXIV. auka landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.06.19.
Málsnúmer 1906115
09
Styrkumsókn Alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2019, dags. 07.06.19.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906127
10
Umsókn Ægis Arnar Kristjánssonar um sumarlaun vegna þátttöku á Ólympíukeppni í efnafræði, dags. 12.06.19.
Bæjarráð samþykkir að verða við erindi bréfritara um greiðslu sumarlauna 2019 vegna undirbúnings fyrir þátttöku í Olympíukeppni í efnafræði.
Málsnúmer 1906157
11
Erindi Leikfélagsins Verðandi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ um styrk vegna leiksýningar, dags. 14.06.19.
Bæjarráð tekur jákvætt í verkefnið og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.