Beint í efni

27. (1888). fundur

16.07.2019
Bæjarráð Garðabæjar

27. (1888). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

16.07.2019

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður

Starfsmenn

  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1907106

01

Fundargerð 17. eigendafundar Sorpu frá 8/7 ´19 - erindisbréf fyrir starfshóp vegna vinnu við aðgerðaráætlun um úrgangsmál á höfuðborgarsvæðinu. <br/><br/>

Málsnúmer 1907107

02

Samþykkt stjórnar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á erindisbréfi fyrir starfshóp varðandi verklag og eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Málsnúmer 1902102

03

Undirbúningur vegna komu flóttafólks.

Félagsráðgjafi gerði grein fyrir stöðu undirbúnings vegna komu flóttafólks til Garðabæjar en gert er ráð fyrir að taka á móti fyrstu einstaklingunum um miðjan september.

Málsnúmer 1806461

04

Staða framkvæmda 2019.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu helstu framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun 2019.

Málsnúmer 1907113

05

Erindi Nova um staðsetningar á staurum við Æðanes til að bæta útbreiðslusvæði farsíma- og farnetsþjónustu fyrir GSM, 3G og 4G þjónustu innan Garðabæjar.

Bæjarráð telur mikilvægt út frá öryggissjónarmiðum að bæjarbúar hafi greiðan aðgang að farsíma- farnetsþjónustu.

Með vísan til þess samþykkir að bæjarráð að heimila NOVA tímabundið til eins árs uppsetningu á staurum fyrir móttökubúnað við Æðanes með því skilyrði að önnur fjarskiptafyrirtæki geti haft aðgang að staurunum. Á tímabilinu skal meta reynslu á bættri þjónustu og kanna viðbrögð íbúa.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1907120

06

Bréf Örnefnanefndar um ensk nöfn á íslenskum stöðum, dags. 26.06.19.