Smáraflöt 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
5. (845). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Smáraflöt 11 um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingarreit.
Bæjarráð Garðabæjar
04
11. (1872). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa að Smáraflöt 11 um breytingu á deiliskipulagi Flata vegna byggingar bílskúrs út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Lögð fram tillaga að stækkun byggingarreits vegna bílageymslu. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni þar sem að bílageymslan nær út fyrir byggingarreit götumegin og auk þess er lengd hússins á lóðarmörkum er orðin langt fram yfir þá 7,5 m sem deiliskipulag gerir ráð fyrir að sé hámarkslengd brunagafls bílageymslu. Byggingin nær að auki út fyrir byggingarreit á baklóð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Flata sem gerir ráð fyrir bílageymslu fyrir framan þá sem fyrir er. Málinu vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.