Miðhraun 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (1872). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RA 5 ehf., kt. 590404-2410, leyfi til að endurbyggja atvinnuhúsnæði, í stað húsnæðis sem var rifið eftir bruna, að Miðhrauni 4.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
3. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi atvinnuhúsnæðis. Samkvæmt umsókna er hæð lyfuthúss 10,4 m. Mænishæð samkvæmt deiliskipulagi er 9,5 m en skipulagsnefnd er heimilt að samþykkja einstaka byggingarhluta í allt að 13 m hæð. Með vísan í grein 3.2. í deiliskipulagsskilmálum heimilar skipulagsstjóri hæð lyftuhúss í 10,4 m yfir gólfkóta.
Ekki er hægt að fallast á skilti ofan við þakbrún byggingar sbr.grein 3.2.4. í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.