Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 6-12.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
11. (1872). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 6-12. Tillagan var grenndarkynnt og bárust engar athugasemdir. Samþykkt deiliskipulagsbreyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
3. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu Urriðaholts Viðskiptastrætis lokinni grenndasrkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast samþykkt.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
14. (836). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna breytinga á lóðamörkum lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
37. (1852). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi 1. áfanga viðskiptastrætis Urriðaholts vegna breytinga á lóðamörkum lóðanna við Urriðaholtsstræti 6-8 og 10-12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
12. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Urriðaholtsstræti 6-12. Tillagan felur í sér breytingu á lóðarmörkum milli lóða Urriðaholtsstrætis 6-8 og 10-12. Lóð Urriðaholtsstrætis 6-8 minnkar um 68 m2 en lóð Urriðaholtsstrætis 10-12 stækkar um 68 m2. Baklóð Urriðaholtsstrætis 6-8 stækkar og rampi sem áður var á lóðarmörkum með kvöð um sameiginlega aðkomu er nú eingöngu á lóð Urriðaholtsstrætis 6-8. Kvöð um sameiginlega aðkomu fellur niður. Lóð Urriðaholtsstrætis 10-12 stækkar nær Urriðaholtsstræti. Byggingarheimildir og fjöldi bílastæða á lóðum er óbreyttur eftir breytingu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og leigjendum beggja lóða. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef aðilar sem grenndarkynning nær til hafa með undirskrift sinni lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna sbr.3.mgr.44.gr.sömu laga.