Beint í efni

18. (820). fundur

16.11.2017
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (820). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

16.11.2017

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. nóvember 2017 er lögð fram.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og ræddi 13. tl., fjárhagsáætlun. Fjallaði bæjarstjóri um álagningu gjalda og hugmyndir um breytingar á gjaldskrám.

María Grétarsdóttir, ræddi sama mál.

Steinþór Einarsson, ræddi sama mál.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál að nýju.

Dagskrá

Málsnúmer 1711006F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 7/11 ´17.

Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1711021F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 14/11 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á skýrslu um mögulega samvinnu eða sameiningu Sorpu bs. og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs með vísan til afgreiðslu á byggingarleyfum og fjallaði um breytingar í íbúðum til útleigu til ferðamanna. Áslaug Hulda vakti athygli á nauðsyn þess að fylgjast vel með þróun mála og fagnaði aðgerðum og eftirliti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu með starfseminni.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.

Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 14. tl., bréf ÚUA um kæru vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahrauns (vegtenging).

Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1711004F

03

Fundargerð leikskólanefndar frá 8/11 ´17.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., starfsumhverfi leikskóla.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Halldór Jörgensson, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., skýrslu starfshóps um fimm ára deildir í grunnskólum.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710024F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 1/11 ´17.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710021F

05

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 12/10 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu frá Evrópuráðstefnu um Alzheimer og 2. tl., dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi sömu mál.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1711011F

06

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 9/11 ´17.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun og fjallaði í því sambandi um hugmyndir um stækkun á húsnæði skólans.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.

Fundargerðin er lögð fram.


Málsnúmer 1710054F

07

Fundargerð umhverfisnefndar frá 1/11 ´17.



Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 3. tl., deiliskipulag Gálgahrauns.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu og minnti á opin fund bæjarstjórnar með hagsmunaðalilum í Sjálandsskóla þriðjudaginn 21 nóvember nk. Jóna ræddi einnig 1. tl., staðfestingu á Garðahverfi sem verndarsvæði í byggð og 3. tl., deiliskipulag Gálgahrauns.

Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Lyklafellslínu.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl., deiliskipulag Gálgahrauns.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 1710014F

08

Fundargerð ungmennaráðs frá 18/9 ´17.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., ungmennaþing Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.


Málsnúmer 1701135

09

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 27/10 og 10/11 ´17

Gunnar Valur Gíslason, ræddi fg. frá 27/10 ´17, 1. tl., leiðakerfi og 2. tl., akstursþjónusta fatlaðs fólks. Þá ræddi Gunnar Valur fg. frá 10/11 ´17. 1. tl., árshlutauppgjör 30.09.2017 og 2. tl., gjaldskrármál.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1709371

10

Gjaldskrá heilbrigðiseftirlits vegna leyfisveitinga o.fl.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að enn eru bannmerki um umferð hunda á Garðatorgi og lagði til að kannað verði í samráði við heilbrigðiseftirlitið hvort ekki megi fjarlægja þau.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu heilbrigðisnefndar um breytingu á gjaldskrá fyrir heilbrigðiseftirlit.

Málsnúmer 1707051

11

Tillaga um álagningu útsvars 2018.



Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2018.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2018 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2017 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.