Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 14/11 ´17.

Málsnúmer 1711021F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (820). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., kynningu á skýrslu um mögulega samvinnu eða sameiningu Sorpu bs. og Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs með vísan til afgreiðslu á byggingarleyfum og fjallaði um breytingar í íbúðum til útleigu til ferðamanna. Áslaug Hulda vakti athygli á nauðsyn þess að fylgjast vel með þróun mála og fagnaði aðgerðum og eftirliti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu með starfseminni.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi sama mál.

Halldór Jörgensson, ræddi sama mál.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 14. tl., bréf ÚUA um kæru vegna breytinga á deiliskipulagi Garðahrauns (vegtenging).

Fundargerðin sem er 19 tl., er samþykkt samhljóða.