37. fundur
37. fundur
Umhverfisnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.08.2017
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - formaður
- Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
- Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Björk Jóhannsdóttir - garðyrkjufræðingur
Ritari
- Guðbjörg Brá Gísladóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1506065
01
Strönd og lækir, mengunarmælingar
Frá Heilbrigðiseftirlitinu bárust niðurstöður mengunar mælinga við strendur, læki og vötn. Sýnatökur fóru fram á tímabilinu 8.-11 ágúst 2017.
Umhverfisnefnd leggur áherslu á að leitað verði skýringa á hærri mælingum við Arnaneslæk og ylströnd.
Málsnúmer 1704156
02
Áætlun um loftgæði til 12 ára
Leiðir til að virkja almenning til að koma með hugmyndir og tillögur að aðgerðum í loftlagsmálum.
Umhverfisnefnd leggur til að málið verði kynnt á heimasíðu Garðabæjar og á samfélagsmiðlum. Drög af skýrslunni "Hreint loft til framtíðar" lögð fram.
Málsnúmer 1708289
03
Ársrit Skógræktarinnar
Ársrit Skógræktarinnar 2016 lagt fram.
Ársrit Skógræktarinnar lagt fram
Málsnúmer 1708288
04
Útivistarkort
Útivistarkort, gönguleiðir í Garðabæ
Umhverfisnefnd samþykkir að undirbúningsvinna við nýtt Útivistarkort hefjist
Málsnúmer 1703022
05
Evrópsk samgönguvika 2017
Evrópsk samgönguvika verður haldin dagan 16-22. september.
Tilraunaverkefni með hraðatakmarkandi aðgerðir á stígnum við Sjáland verður kynnt á samgönguviku og einnig hraðhleðslustöð við Garðatorg.
Málsnúmer 1707051
06
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021)
Tillögur frá Umhverfisnefnd um málefni á fjárhagsáætlun 2018.
Undirbúningur fjárhagsáætlunar rædd
Málsnúmer 1302243
07
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Athugasemdir og umsagnir kynntar.
Skipulagsstjóri kom á fundinn og kynnti umsagnir og athugasemdir við aðalskipulag Garðabæjar.