6. (828). fundur
6. (828). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
05.04.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Almar Guðmundsson, varaforseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Varaforseti lagði til með vísan til heimildar í 2. mgr. 17. gr. samþykkta um stjórn Garðabæjar að taka á dagskrá sem dagskrárlið nr. 10 ársreikning Garðabæjar 2017 ? síðari umræða, enda sé tillagan samþykkt af öllum viðstöddum bæjarfulltrúum.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. mars 2018 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 1803026F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/3 ´18.
Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., fundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráðstafa hluta af arðgreiðslu bæjarins, af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, til verkefnis eða verkefna í forvarnarmálum í þágu ungs fólks í Garðabæ.“
Greinargerð:
Arðgreiðsla Garðabæjar af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, sem samþykkt var á aðalfundi sjóðsins í mars s.l., er tæpar 15 milljónir króna. Fyrir ári síðan var arðgreiðslan um 17 milljónir króna og þá var samþykkt svipuð tillaga og í greinargerð þá kom m.a. fram að skynsamlegt væri að nota hluta þess fjár til forvarna fyrir ungt fólk. Mörg brýn verkefni kæmu til greina, meðal annars verkefni til að vinna með kvíða sem fer vaxandi hjá ungu fólki, notkun snjalltækja og áhrif þeirra á ungt fólk. Verkefnin væri hægt að vinna í samvinnu við aðra aðila, svo sem heilsugæslu Garðabæjar.
Fræðslu- og menningarsvið sem kemur mest að starfi með ungu fólki væri falið að koma með tillögur og kostnaðaráætlun að verkefni eða verkefnum fyrir bæjarráð.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og sagði frá aðkomu skólanefndar að verkefnum í þágu ungs fólks.
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs. Þá ræddi bæjarstjóri 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka og 6. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á aðalskipulagi Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um ráðstöfun hluta arðgreiðslna til bæjarráðs.
Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1803034F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/3 ´18.
Halldór Jörgensson, ræddi 11. tl., fyrirspurn um afgreiðslu á erindum, 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði og 14. tl., útsendingu frá HM á Garðatorgi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 14. tl., útsendingu frá HM á Garðatorgi og 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir um afgreiðslur mála og félagslegt húsnæði.
Steinþór Einarsson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Haldór Jörgensson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10. tl., samning við UMF Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Í núgildandi samstarfssamningi Garðabæjar við ungmennafélagið Stjörnuna, frá 7. febrúar 2017, er veitt 20 milljónum til sérstaks þróunarverkefnis. Þar er tekið fram að Stjarnan skuli framkvæma reglulega mælinga- og þjónustukönnun á starfsemi félagsins. Jafnframt skuli Stjarnan útfæra þróunarverkefnið nánar og kynna það fyrir ÍTG fyrir lok febrúar. Það er þó ekki tekið fram í samningnum á hvaða ári sú kynning eigi að fara fram. Líklega í febrúar 2017. Einnig skal framkvæmdastjóri Stjörnunnar kynna á 6 mánaða fresti framvindu verkefnisins ásamt því að taka saman greinargerð um árangurinn í lok samningstímans.
Hafa þessar mælingar, kannanir og kynningar sem getið er um í samningnum farið fram? Þær koma hvergi fram í fundargerðum ÍTG. Hver er eftirfylgnin á þessu þróunarverkefni? Ég óska líka eftir frekari skilgreiningu eða innihaldslýsingu á þróunarverkefninu og í hverju það felst.
Einnig væri fróðlegt að vita hvernig þessi samningur var saminn á sínum tíma. Var textinn saminn í sameiningu af báðum aðilum eða sáu bæjaryfirvöld að mestu leyti um útfærsluna?“
Björg Fenger ræddi 10. tl., og framkomna fyrirspurn. Þá ræddi Björg 9. tl., minnisblað um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla.
Gunnar Einarsson ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., fyrirspurn um afgreiðslu erinda, 10. tl., samning við UMF Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla og 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl. minnisblað um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla og 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. og 12. tl., er varða fyrirspurnir. Þá ræddi Almar 10. tl., samning við Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 11. tl, fyrirspurn um afgreiðslur erinda.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða
Málsnúmer 1803028F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 21/3 ´18.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., opin leiksvæði.
Björg Fenger, ræddi 4. tl., opin leiksvæði.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., opin leiksvæði.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., opin á leiksvæði.
Gunnar Einarsson, ræddi 4. tl., opin svæði og greindi frá upplýsingum á vef Garðabæjar um stöðu framkvæmda.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1803017F
04
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/3 ´18.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi skólaþing Garðabæjar 2018 og lýsti ánægju með þingið og færði öllum þeim sem að komu þakkir fyrir framlag þeirra við undirbúning og framkvæmd þingsins.
Áslaug Hulda lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Steinþóri Einarssyni.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir, í tilefni sigurs liðs Fjölbrautaskólans í Garðabæ í Gettu betur spurningakeppni framhaldsskólanna, að styðja við kaup á tölvubúnaði í endurnýjað bókasafn skólans sem nýtist öllum nemendum.“
Greinargerð:
Samskipti og samvinna milli Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Garðabæjar, stofnana og annarra aðila innan sveitarfélagsins, hafa verið góð og eru samfélaginu mikilvæg.
Sigurlið Fjölbrautaskólans í Gettu betur stóð sig frábærlega í ár og sigur þeirra hefur góð áhrif fyrir skólann og samfélagið allt. Þau Jóel Ísak Jóelsson, Guðrún Kristín Kristinsdóttir og Gunnlaugur Hans Stephensen skipa sigurliðið, þau eru öll búsett í Garðabæ og eru góðar fyrirmyndir.
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að útfæra tillöguna í samvinnu við stjórnendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Steinþór Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skólaþing Garðabæjar 2018 og framkomna tillögu. Sigríður Hulda lýsti yfir stuðningi við tillöguna. Þá ræddi Sigríður Hulda 5. tl., umsóknir um styrki úr þróunarsjóði grunnskóla.
María Grétarsdóttir kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að aðeins tveir aðalfulltrúar sátu fund skólanefndar að þessu sinni. Þá ræddi María 1. tl., skólaþing Garðabæjar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna tillögu og lýsti stuðningi við hana.
Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu og lýsti stuðningi við hana.
María Grétarsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu um kaup á tölvubúnaði fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ til heiðurs sigurliði skólans í Gettu betur.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1803021F
05
Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/3 ´18.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., hreinsunarátak 2018 og hvatti alla bæjarfulltrúa og aðra íbúa bæjarins til að taka til hendinni á hreinsunardögum vorsins.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801390
06
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 26/3 ´18.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1801146
07
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 9/3 og 16/3 ´18.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 3. tl. fg. 16/3, ríkissamning og 5. tl., akstursþjónustu fatlaðs fólks.
María Grétarsdóttir, ræddi málefni Strætó bs. og spurði um umræðu um borgarlínu í stjórn Strætó bs.
Gunnar Valur Gíslason, svaraði fyrispurn og upplýsti að umræða um borgarlínu hafi ekki verið innan stjórnar Strætó og væri að svo stöddu ekki verkefni Strætó.
María Grétarsdóttir tók til máls að nýju.
Steinþór Einarsson, tók til máls.
Gunnar Einarsson, tók til máls.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 1801362
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 16/3 ´18.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., upplýsingar um verðlaun til Sorpu og 2. tl., stöðu í samningskaupsviðræðum vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 1701289
09
Fundargerðir stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 10/4 og 15/12 2017. og frá 19/1 21/2 26/2 og 21/3 2018.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi vinnu við gerð brunavarnaráætlunar og stöðu mála.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 1711152
10
Ársreikningur Garðabæjar 2017 (síðari umræða)
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og ræddi niðurstöður ársreiknings. Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2017.
Bæjarstjórn samþykkir við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2017 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.
Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af bæjarfulltrúum.