Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/3 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (828). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi skólaþing Garðabæjar 2018 og lýsti ánægju með þingið og færði öllum þeim sem að komu þakkir fyrir framlag þeirra við undirbúning og framkvæmd þingsins.
Áslaug Hulda lagði fram eftirfarandi tillögu er hún flytur ásamt Steinþóri Einarssyni.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir, í tilefni sigurs liðs Fjölbrautaskólans í Garðabæ í Gettu betur spurningakeppni framhaldsskólanna, að styðja við kaup á tölvubúnaði í endurnýjað bókasafn skólans sem nýtist öllum nemendum.“
Greinargerð:
Samskipti og samvinna milli Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Garðabæjar, stofnana og annarra aðila innan sveitarfélagsins, hafa verið góð og eru samfélaginu mikilvæg.
Sigurlið Fjölbrautaskólans í Gettu betur stóð sig frábærlega í ár og sigur þeirra hefur góð áhrif fyrir skólann og samfélagið allt. Þau Jóel Ísak Jóelsson, Guðrún Kristín Kristinsdóttir og Gunnlaugur Hans Stephensen skipa sigurliðið, þau eru öll búsett í Garðabæ og eru góðar fyrirmyndir.
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að útfæra tillöguna í samvinnu við stjórnendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Steinþór Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., skólaþing Garðabæjar 2018 og framkomna tillögu. Sigríður Hulda lýsti yfir stuðningi við tillöguna. Þá ræddi Sigríður Hulda 5. tl., umsóknir um styrki úr þróunarsjóði grunnskóla.
María Grétarsdóttir kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að aðeins tveir aðalfulltrúar sátu fund skólanefndar að þessu sinni. Þá ræddi María 1. tl., skólaþing Garðabæjar.
Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna tillögu og lýsti stuðningi við hana.
Halldór Jörgensson, ræddi framkomna tillögu og lýsti stuðningi við hana.
María Grétarsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu um kaup á tölvubúnaði fyrir Fjölbrautaskólann í Garðabæ til heiðurs sigurliði skólans í Gettu betur.
Fundargerðin er lögð fram.