Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 20/3 ´18.

Málsnúmer 1803026F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

6. (828). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., fundarboð Lánasjóðs sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráðstafa hluta af arðgreiðslu bæjarins, af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, til verkefnis eða verkefna í forvarnarmálum í þágu ungs fólks í Garðabæ.“

Greinargerð:
Arðgreiðsla Garðabæjar af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, sem samþykkt var á aðalfundi sjóðsins í mars s.l., er tæpar 15 milljónir króna. Fyrir ári síðan var arðgreiðslan um 17 milljónir króna og þá var samþykkt svipuð tillaga og í greinargerð þá kom m.a. fram að skynsamlegt væri að nota hluta þess fjár til forvarna fyrir ungt fólk. Mörg brýn verkefni kæmu til greina, meðal annars verkefni til að vinna með kvíða sem fer vaxandi hjá ungu fólki, notkun snjalltækja og áhrif þeirra á ungt fólk. Verkefnin væri hægt að vinna í samvinnu við aðra aðila, svo sem heilsugæslu Garðabæjar.
Fræðslu- og menningarsvið sem kemur mest að starfi með ungu fólki væri falið að koma með tillögur og kostnaðaráætlun að verkefni eða verkefnum fyrir bæjarráð.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu og sagði frá aðkomu skólanefndar að verkefnum í þágu ungs fólks.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs. Þá ræddi bæjarstjóri 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., uppsetningu öryggismyndavéla innan bæjarmarka og 6. tl., bréf Skipulagsstofnunar varðandi staðfestingu á aðalskipulagi Garðabæjar.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um ráðstöfun hluta arðgreiðslna til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 11 tl. er samþykkt samhljóða.