Fundargerð bæjarráðs frá 27/3 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
6. (828). fundur
Halldór Jörgensson, ræddi 11. tl., fyrirspurn um afgreiðslu á erindum, 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði og 14. tl., útsendingu frá HM á Garðatorgi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 14. tl., útsendingu frá HM á Garðatorgi og 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir um afgreiðslur mála og félagslegt húsnæði.
Steinþór Einarsson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Sturla Þorsteinsson, ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Haldór Jörgensson, ræddi 11. tl., og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 10. tl., samning við UMF Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Í núgildandi samstarfssamningi Garðabæjar við ungmennafélagið Stjörnuna, frá 7. febrúar 2017, er veitt 20 milljónum til sérstaks þróunarverkefnis. Þar er tekið fram að Stjarnan skuli framkvæma reglulega mælinga- og þjónustukönnun á starfsemi félagsins. Jafnframt skuli Stjarnan útfæra þróunarverkefnið nánar og kynna það fyrir ÍTG fyrir lok febrúar. Það er þó ekki tekið fram í samningnum á hvaða ári sú kynning eigi að fara fram. Líklega í febrúar 2017. Einnig skal framkvæmdastjóri Stjörnunnar kynna á 6 mánaða fresti framvindu verkefnisins ásamt því að taka saman greinargerð um árangurinn í lok samningstímans.
Hafa þessar mælingar, kannanir og kynningar sem getið er um í samningnum farið fram? Þær koma hvergi fram í fundargerðum ÍTG. Hver er eftirfylgnin á þessu þróunarverkefni? Ég óska líka eftir frekari skilgreiningu eða innihaldslýsingu á þróunarverkefninu og í hverju það felst.
Einnig væri fróðlegt að vita hvernig þessi samningur var saminn á sínum tíma. Var textinn saminn í sameiningu af báðum aðilum eða sáu bæjaryfirvöld að mestu leyti um útfærsluna?“
Björg Fenger ræddi 10. tl., og framkomna fyrirspurn. Þá ræddi Björg 9. tl., minnisblað um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla.
Gunnar Einarsson ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
María Grétarsdóttir, ræddi 11. tl., fyrirspurn um afgreiðslu erinda, 10. tl., samning við UMF Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla og 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 9. tl. minnisblað um húsnæðismál tómstundaheimilis Álftanesskóla og 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. og 12. tl., er varða fyrirspurnir.
Almar Guðmundsson, ræddi 11. og 12. tl., er varða fyrirspurnir. Þá ræddi Almar 10. tl., samning við Stjörnuna um rekstur og starfsemi íþróttavalla.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 11. tl, fyrirspurn um afgreiðslur erinda.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Halldór Jörgensson, ræddi að nýju 12. tl., fyrirspurn um félagslegt húsnæði.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða