33. (1848). fundur
33. (1848). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
18.09.2018
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1711138
01
Persónuvernd - innleiðing á nýrri löggjöf.
Á fund bæjarráðs mætti Telma Halldórsdóttir, persónuverndarfulltrúi og gerði grein fyrir verkefnum sem hafin er vinna við vegna innleiðingar á nýjum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Málsnúmer 1806461
02
Fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) - Forsendur og vinnuferlar.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og vinnuferlum vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2019 (2019-2022).
Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði 30. október 2018 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 1. nóvember 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707051
03
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018- málaflokkayfirlit janúar - júní.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum málaflokkayfirlits janúar - júní 2018.
Málsnúmer 1707051
04
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - viðaukar 4-7.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir eftirfarandi viðaukum 4- 7 við fjárhagsáætlun 2018.
Viðauki 4 Snjómokstur og Strætó
Viðauki 5 HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi
Viðauki 6 Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla
Viðauki 7 Framlag til Hrafnistu, liðveisla, lengd viðvera, húsaleigubætur.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 4-7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 4
Snjómokstur kr. 25.000.000
Strætó bs. - framlag kr. 27.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -52.000.000
Viðauki 5
HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi kr. 10.700.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -10.700.000
Viðauki 6
Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla kr. 5.000.000
Urriðaholtsskóli (lækkun) kr. -5.000.000
Viðauki 7
Framlag til Hrafnistu samkvæmt samningi kr. 25.500.000
Liðveisla fatlaðs fólks kr. 30.000.000
Lengd viðvera nemenda kr. 11.000.000
Húsaleigubætur kr. 6.500.000
Framlag Jöfnunarsjóðs (hækkun) kr. -12.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -61.000.000
Sigríður Hulda Jónsdóttir, vék af fundi kl. 09:05 og tók Gunnar Einarsson sæti á fundinum sem varamaður.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806474
05
Kinnargata 16 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Langjökli ehf., kt. 670114-1120 leyfi til að byggja einbýlishús að Kinnargötu 16.
Málsnúmer 1808073
06
Opnun tilboða í gatnagerð og lagnir í austurhluta Urriðaholts.
Eftirfarandi tilboð sem hafa verið yfirfarin eru lögð fram.
Jarðaval sf. kr. 588.053.450
Háfell ehf. kr. 612.151.100
Loftorka Reykjavík ehf. kr. 663.900.000
Grafa og grjót ehf. kr. 552.093.600
Kostnaðaráætlun kr. 614.068.454
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1808159
07
Opnun tilboða í niðurrif húsa við Lækjarfit.
Eftirfarandi tilboð sem hafa verið yfirfarin eru lögð fram.
GT ? verktakar ehf. kr. 14.000.000
Mölun ehf. kr. 13.622.750
A.B.L. Tak ehf. kr. 14.475.500
EJ vélar kr. 14.551.615
Work North ehf. kr. 22.579.000
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Mölunar ehf. með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og felur bæjarverkfræðingi afgreiðslu málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809166
08
Bréf Tækniskólans um lóð fyrir nýbyggingu er hýsi starfsemi skólans, dags. 10.09.18.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn skólans þar sem ræddir voru möguleikar á staðsetningu lóðar fyrir skólann í Garðabæ.
Bæjarráð telur málið áhugavert og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809167
09
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi á stuðningsmannakvöldi UMFÁ í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1809173
10
Bréf Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra um túlkaþjónustu á tómstundar- og menningarviðburðum, dags. 05.09.18.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum eða tilvikum hverju sinni. Bæjarráð vísar beiðni um styrk til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809101
11
Tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um ársfund 2018.
Lögð fram.
Málsnúmer 1809182
12
Bréf Kvenfélags Garðabæjar um endurnýjun eldhúss og bifreiðastæðis við Garðaholt, dags. 12.09.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809183
13
Bréf íbúa í efri Lundum um hraðatakmarkanir og aukið umferðaröryggi, dags. 05.09.18.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið erindinu og vísar því til frekari úrvinnslu hjá tækni- og umhverfissviði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1809190
14