27. (1842). fundur
27. (1842). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
31.07.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - varamaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1710028
01
Tillaga um skilmála vegna tilboða um uppbyggingu heilsuræktar í Ásgarði.
Farið yfir skilmála tilboðs um uppbyggingu heilsuræktar í íþróttmiðstöðinni Ásgarði en á fundi bæjarráðs sem haldinn var 26. júní sl. var samþykkt að gefa Sporthöllinni ehf. og Laugum ehf. kost á að gefa tilboð í verkefnið.
Bæjarráð samþykkir skilmálana með minniháttar breytingum. Frestur til að skila tilboðum er til 21. ágúst 2018.
Málsnúmer 1807110
02
Bréf Alþjóðaskólans á Íslandi varðandi stöðuleyfi fyrir bráðabirgðahús, dags. 26.07.18.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veita stöðuleyfi til allt að 24 mánaða fyrir bráðabirgðahús á lóð Þórsmerkur. Bæjarráð vísar umsókninni til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja viðræður við Alþjóðaskólann á Íslandi um framtíðaruppbyggingu á starfsemi skólans á svæðinu við Þórsmörk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807225
03
Umsókn Víðis Hólm um styrk fyrir kvikmyndaverkefni, dags. 27.07.18.
Bæjarráð vísar umsókninni til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1807227
04
Tilkynning frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu varðandi drög að frumvarpi um nýja stofnun verndarsvæða, dags. 27.07.18.
Bæjarráð vísar málinu til kynningar í umhverfisnefnd.