Melás 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
21. (1836). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Fasteignafélaginu Hosiló ehf., kt. 531210-1900 leyfi til að breyta einbýlishúsi í tvíbýlishús að Melási 9.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem nær til lóðarinnar Melás 9 sem gerir ráð fyrir því að einbýlishús verði tvíbýlishús. Skv grein 2.2.4. í skilmálum deiliskipulags Ása og Grunda skal gera ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir einbýlishús en 1,5 bílastæðum á íbúð í fjölbýlishúsum. Deiliskipulagsbreytingin felst því í fjölgun bílastæða um 1. Með vísan í 2.gr. Viðauka II um embættisafgreiðslu skipulagsstjóra samþykkir skipulagsstjóri breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu sbr. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Þar sem samþykki allra þeirra sem breytingin nær til er grenndarkynning felld niður sbr 44.gr.sömu laga.