2. fundur
2. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.05.2018
Kl. 09:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Eysteinn Haraldsson
- Guðjón Erling Friðriksson
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1804196
01
Kinnargata - húsnúmerabreyting
Óskað er eftir að tekið verði fyrir erindi um endurskoðun númer lóðarinnar Kinnargötu 19-25, sem hefur áhrif á nr. lóða með hærri lóðarnúmerum í nýjum skipulagsáfanga.
Breytingin yrði:
- Kinnargata 19-25 verður Kinnargata 19
- Kinnargata 27 verður Kinnargata 21
Fyrsta nýja lóðin ofan Kinnargötu í austurhluta yrði þannig nr. 23.
Með vísan í viðauka II um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra nr.20/2017 samþykkir skipulagsstjóri ofangreindar breytingar á húsnúmerum sem óverulegar breytingar og fellir niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1804106
02
Melás 9 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem nær til lóðarinnar Melás 9 sem gerir ráð fyrir því að einbýlishús verði tvíbýlishús. Skv grein 2.2.4. í skilmálum deiliskipulags Ása og Grunda skal gera ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir einbýlishús en 1,5 bílastæðum á íbúð í fjölbýlishúsum. Deiliskipulagsbreytingin felst því í fjölgun bílastæða um 1. Með vísan í 2.gr. Viðauka II um embættisafgreiðslu skipulagsstjóra samþykkir skipulagsstjóri breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu sbr. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Þar sem samþykki allra þeirra sem breytingin nær til er grenndarkynning felld niður sbr 44.gr.sömu laga.
Málsnúmer 1802154
03
Keldugata 1 - byggingarreitur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að byggingarreit verði hnikað um 80 cm að húsi númer 3. Umsókn skýrist af því að vegna mistaka var rangur breytingauppdráttur deiliskipulagsbreytingar á skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og að húsið var fullhannað með röngum forsendum hvað varðar lögu byggingarreits sem snýr að Bæjargötu 2 og 4. Með því að hnika húsinun til leysist skipulag hússins. Samþykki eigenda Keldugötu 3 liggur fyrir. Skipulagsstjóri heimilar að við útgáfu byggingarleyfis sé vikið sé frá kröfu um 2.mgr. 43.gr. um óverulega breytingu deiliskipulags þar sem að um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðis í engu og að auki liggur samþykki nágranna fyrir.
Málsnúmer 1804365
04
Hraungata - húsnúmerabreyting
Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs um tilfæringar á númeraröð neðan við götu í Hraungötu frá lóð nr. 2-8. Húsin númer 2-8 verða númer 2-6, hús númer 10 verður númer 8, hús nr. 12 verður númer 10, hús númer 14 verður númer 12 o.s.frv. að húsi nr. 28 sem verður hús nr. 26. Fyrsta lóðin í nýjum áfanga fyrir Urriðaholt austurhluti verður nr. 28. Með vísan í viðauka II um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra nr.20/2017 samþykkir skipulagsstjóri ofangreindar breytingar á húsnúmerum sem óverulegar breytingar og fellir niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1804366
05
Dýjagata - húsnúmerabreyting
Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs um tilfæringar á númeraröð neðan götu í Dýjagötu frá lóð nr. 2-8. Húsin númer 2-8 verða númer 2-6,hús númer 10 verður númer 8, Hús númer 12 verður númer 10,Hús númer 14 verður númer 12, hús númer 16 verður númer 14, hús númer 18 verður númer 16 og hús númer 20 verður númer 18.Með vísan í viðauka II um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra nr.20/2017 samþykkir skipulagsstjóri ofangreindar breytingar á húsnúmerum sem óverulegar breytingar og fellir niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.
Málsnúmer 1707209
06
Sjónarvegur 16-24 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholt Norðurhluta 3. Gert er ráð fyrir færslu á sorp- og hjólageymslu ásamt bílastæðum. Með vísan í 2.gr. Viðauka II um embættisafgreiðslu skipulagsstjóra samþykkir skipulagsstjóri breytinguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu sbr. 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Þar sem samþykki allra þeirra sem breytingin nær til er grenndarkynning felld niður sbr 44.gr.sömu laga.