Kinnargata - húsnúmerabreyting
Málsnúmer 1804196
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
2. fundur
Óskað er eftir að tekið verði fyrir erindi um endurskoðun númer lóðarinnar Kinnargötu 19-25, sem hefur áhrif á nr. lóða með hærri lóðarnúmerum í nýjum skipulagsáfanga.
Breytingin yrði:
- Kinnargata 19-25 verður Kinnargata 19
- Kinnargata 27 verður Kinnargata 21
Fyrsta nýja lóðin ofan Kinnargötu í austurhluta yrði þannig nr. 23.
Með vísan í viðauka II um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra nr.20/2017 samþykkir skipulagsstjóri ofangreindar breytingar á húsnúmerum sem óverulegar breytingar og fellir niður grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins.