4. (826). fundur
4. (826). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
01.03.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Einarsson - varamaður
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 15. febrúar 2018 er lögð fram.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og gerði athugasemdir við seinagang við að gera hljóðritanir af fundum bæjarstjórnar aðgengilegar á vef bæjarins.
Dagskrá
Málsnúmer 1802026F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 20/2 ´18
Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins og 13. tl., aðgerðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 13. tl., aðgerðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl. framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins og 13. tl., aðgerðir til að efla starfsumhverfi leikskóla.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 13. tl., aðgerðir til að efla starfsumhverfi leikskóla og 1. tl. framtíðarsýn fyrir skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin sem er 13 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1802035F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 27/2 ´18.
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
Vegna framkvæmda við Móaflöt og Hagaflöt á árinu 2017 er óskað eftir upplýsingum um:
a) Hver var heildarupphæð dagsekta vegna framkvæmda?
b) Hver var heildarkostnaður við eftirlit vegna framkvæmda?
Þá ræddi Steinþór 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Halldór Jörgensson, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt og 1. tl., fjölnota íþróttahús- alútboðsgögn.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1802013F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/2 ´18.
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á afgreiðslum ráðsins á afreksstyrkjum til fjölmargra íþróttamanna sem væri mjög ánægjulegt og til vitnis um öflugt íþrótta- og tómstundastarf.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að Garðbæingurinn Hilmar Snær Örvarsson, tekur nú þátt í vetrarolympíuleikjum fatlaðs fólks sem haldnir eru í Suður Kóreu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og fjallaði um ástand parketgólfs í íþróttasal Ásgarðs og upplýsti að verið er að skoða hvernig best er að standa að lagfæringum og endurbótum.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1802016F
04
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/2 ´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., skólaþing Garðabæjar árið 2018.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., PISA fyrir 15 ára nemendur.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., PISA fyrir 15 ára nemendur.
María Grétarsdóttir, ræddi skólamál og upplýsingar um árangur nemenda í skólum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi skólamál og upplýsingar um árangur nemenda.
María Grétarsdóttir tók til máls að nýju.
Sigríður Hulda Jónsdóttir , tók til máls að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi skólamál og upplýsingar um árangur nemenda.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801390
05
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 26/2 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1802195
06
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13/2 ´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801175
07
Fundargerð stjórnar SSH frá 12/2 ´18.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að samkvæmt dagskrá fundar svæðisskipulagsnefndar SSH sem halda á á morgun hafa verið boðaðir fulltrúar ÁTVR til að ræða staðsetningu vínbúða.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
08
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 21/2 ´18.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi flokkun plasts.
Sturla Þorsteinsson, ræddi flokkun plasts. Þá ræddi Sturla 1. tl., niðurstöðu útboðs á byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöðu útboðs á byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi. Þá ræddi Jóna flokkun plasts.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi flokkun plasts.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi flokkun plasts.
Steinþór Einarsson, ræddi flokkun plasts.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801146
09
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 16/2 ´18.
Halldór Jörgensson, ræddi 5. tl., öryggi farþega og starfsfólks Strætó og gerði að umtalsefni slæmt ástand gatna eftir veturinn.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1710169
10
Fjölnota íþróttahús - Alútboðsgögn
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og verða þau send þátttakendum í lokuðu alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Í gögnunum koma fram fyrirvarar um endanlegt deiliskipulag svæðisins. Þátttakendur í lokuðu útboði eru eftirfarandi verktakar samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar frá fundi, dags. 1. febrúar 2018.
Íslenskir aðalverktakar, kt. 660169-2379 Eykt ehf., kt. 560192-2319 Ístak hf., kt. 430214-1520 Munck á Íslandi, kt., 701013-0340.
María Grétarsdóttir situr hjá.