Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 14/2 ´18.
Málsnúmer 1802013F
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (826). fundur
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á afgreiðslum ráðsins á afreksstyrkjum til fjölmargra íþróttamanna sem væri mjög ánægjulegt og til vitnis um öflugt íþrótta- og tómstundastarf.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á að Garðbæingurinn Hilmar Snær Örvarsson, tekur nú þátt í vetrarolympíuleikjum fatlaðs fólks sem haldnir eru í Suður Kóreu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og fjallaði um ástand parketgólfs í íþróttasal Ásgarðs og upplýsti að verið er að skoða hvernig best er að standa að lagfæringum og endurbótum.
Fundargerðin lögð fram.