Fundargerð bæjarráðs frá 27/2 ´18.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
4. (826). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
Vegna framkvæmda við Móaflöt og Hagaflöt á árinu 2017 er óskað eftir upplýsingum um:
a) Hver var heildarupphæð dagsekta vegna framkvæmda?
b) Hver var heildarkostnaður við eftirlit vegna framkvæmda?
Þá ræddi Steinþór 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Halldór Jörgensson, ræddi 7. tl., samþykkt bæjarstjórnar um menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt og 1. tl., fjölnota íþróttahús- alútboðsgögn.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 4. tl., bréf Kristjáns Jóhannessonar varðandi framkvæmdir við Móaflöt.
Fundargerðin sem er 7 tl. er samþykkt samhljóða.