Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Flata barðandi lóðina við Tjarnarflöt 12.

Málsnúmer 1806304

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

31. (1846). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar við Tjarnarflöt 12. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata sem nær til lóðarinnar Tjarnarflöt 12 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir hafa borist. Tillagan skoðast því samþykkt sbr. 2.mgr. 43.gr. og 2.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

4. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits framan við bílageymslu þar sem óformað er að reisa opið bílskýli.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í sarmræmi við 2.mgr. 43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Tjarnarflatar nr.10 og 11.
Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugsemdir við tillöguna.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.