4. fundur
4. fundur
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
04.07.2018
Kl. 14:00 - 14:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson
- Anna María Guðmundsdóttir
- Guðjón Erling Friðriksson
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1706284
01
Sjávargata 3 - lóðarmörk - hver á hvað
Umrætt svæði liggur utan lóða í landi Landakots og tilheyrir því jörðinni Landakot, landnúmer 123236, sem er í eigu Garðabæjar.
Skipulagsstjóri beinir því til garðyrkjustjóra að skoða frágang á lóðarmörkum að Sjávargötu 3.
Málsnúmer 1806079
02
Hofslundur 17 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu við raðhúsið að Hofslundi 17 að vestanverðu.
Áður er byggingarleyfi er veitt þarf samþykki allra eigenda raðhúsalengjunnar Hofslundur 11, 13, 15 17 og 19 að liggja fyrir sbr. 30.gr. laga um fjöleignahús nr.26/1994.
Skipulagstjóri fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 að því tilskyldu að samþykki eigenda raðhúsalengjunnar liggi fyrir.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1704178
03
Kjarrmóar 16-Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að viðbyggingu við raðhúsið Kjarrmóar 16 að vestanverðu. Samþykki annarra eigenda raðhúslengjunnar, þ.e. að Kjarrmóa 10, 12 og 14 liggur fyrir. Eigandi Kjarrmóa nr.18 hefur með áritun lýst því yfir að hann geri ekki athugasemd við umsóknina.
Með vísan í 44.gr.Skipulagslaga nr. er frekari grenndarkynning felld niður og skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1806137
04
Smáraflöt 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að viðbyggingu að Smáraflöt 18 ásamt breytingum innanhúss á bílageymslu þar sem hluti hennar verður innréttaður sem svefnherbergi.
Viðbygging er í samræmi við deiliskipulag. Útfærslu bílageymslu án bílskúrshurðar er hafnað þar sem að deiliskipulag gerir ráð fyrir bílageymslu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1806134
05
Norðurbrú 2, Skjólveggur
Lögð fram umsókn húsfélagsins að Norðurbrú 2 um breytingu deiliskipulags sem felur í sér gerð skjólgirðingar sem er 1,5 m að hæð en deiliskipulag kveður á um 1 metra hámarkshæð girðinga á lóð.
Skipulagstjóri metur breytinguna sem frávik frá deiliskipulagi í samræmi við 3.mgr. 43.gr.Skipulagslaga og gerir ekki athugasemd við að veggur verði reistur enda er hæðarmunur miðað við lóðarmörk að götu talsverður auk þess sem ónæði af völdum umferðar dregur úr gæðum lóðarinnar framan við húsvegg.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
Málsnúmer 1806304
06
Tjarnarflöt 12 - byggingareitur stækkun
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir stækkun byggingareits framan við bílageymslu þar sem óformað er að reisa opið bílskýli.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í sarmræmi við 2.mgr. 43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Tjarnarflatar nr.10 og 11.
Heimilt er að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem grenndarkynning nær til árita á uppdrátt að þeir geri ekki athugsemdir við tillöguna.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.