Smáraflöt 18 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1806137
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
4. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að viðbyggingu að Smáraflöt 18 ásamt breytingum innanhúss á bílageymslu þar sem hluti hennar verður innréttaður sem svefnherbergi.
Viðbygging er í samræmi við deiliskipulag. Útfærslu bílageymslu án bílskúrshurðar er hafnað þar sem að deiliskipulag gerir ráð fyrir bílageymslu.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.