Listadagar barna og ungmenna 2020
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
20. fundur
Listadagar barna og ungmenna þetta ár falla niður.
Vegna neyðarstigs almannavarna í tengslum við Covid-19 faraldurinn verða engir Listadagar barna og ungmenna í lok apríl eins og til stóð. Kanna þarf í samráði við skólastjórnendur hvort fresta skuli listadögum um ár eða hafa þá vorið 2022.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
19. fundur
Umfjöllun um listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir í lok apríl 2020.
Listadagar barna og ungmenna eru haldnir í níunda sinn dagana 23.apríl- 3. maí nk. Undirþema listadaganna er tengt við Barnasáttmálann. Listadagarnir eru haldnir með þátttöku leik- og grunnskóla, Tónlistarskóla sem og söfnum bæjarins. Greint var frá hvernig dagskrá hefur verið á undanförnum listadögum og uppleggið verður með svipuðum hætti í ár.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Listadagar barna og ungmenna hafa verið haldnir annað hvert ár að vori eða í kringum síðustu vikuna í apríl. Greint var frá því hvernig hefur verið staðið að listadögunum á liðnum árum í samstarfi við skóla bæjarins en undirbúningur að næstu listadögum er að fara hefjast með haustinu.