31. fundur
31. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
03.05.2021
Kl. 16:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2102116
01
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2021 og heiðursviðurkenning
Tillaga menningarfulltrúa samþykkt einróma og verður tillagan send bæjarráði í kjölfarið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2104128
02
Hvatningarsjóður ungra listamanna
Menningarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2011026
03
Umsókn frá HIMA
HIMA, tónlistarnámskeið í Garðabæ
Rætt um umsókn um styrk til tónlistarnámskeiðsins HIMA sem er ætlað lengra komnum nemendum í klassískri tónlist. Samþykkt að styrkja verkefnið um 400.000 kr. enda muni fylgja í kjölfarið allt að fernir tónlistarviðburðir fyrir íbúa Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105004
04
Sumarstörf, Vinnumálastofnun
Menningarfulltrúi kynnti hugmyndir um störf sem auglýst er eftir og tengjast list og menningu í Garðabæ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2105005
05
Styrkumsóknir frá Bókasafni Garðabæjar
Málið rætt og áfram til umfjöllunar hjá nefndinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1711209
06
Hofsstaðir - minjagarður - hugmyndahönnun
Málsnúmer 2101137
07
Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021
Barnamenningarhátíð í Garðabæ í fyrsta sinn, opnuð 4. maí.
Menningarfulltrúi segir frá dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ.
Skólabörn munu fylla Garðatorg af lífi dagna 4. til 7. maí þegar Barnamenningarhátíð í Garðabæ verður haldin í fyrsta sinn í bænum. Að þessu sinni verður þó aðeins boðið upp á dagskrá fyrir skólahópa en ekki fjölskyldur eins og til stóð.
Öll fjölskyldan getur þó notið sýningarinnar Hverafuglar á bjargi á Garðatorgi 1, við hlið Bónus. Á sýningunni verða leirfuglar eftir 600 börn úr 5. ? 7. bekkjum allra grunnskóla Garðabæjar sem hafa heimsótt Hönnunarsafnið frá því í febrúar, sýndir. Á Bókasafni Garðabæjar verður sýningin Kílómeter upp í himininn einnig opin almenningi en afrakstur ljóðasmiðja sem börn á leikskólunum Krakkakoti og Bæjarbóli tóku þátt í verður sýndur.
Dagskrá hátíðarinnar verður á þá leið að 1. bekkingar taka þátt í greina- og ullarsmiðju á Garðatorgi 1; 3. bekkingar í dagskránni Dýrin í Deiglumó á Hönnunarsafni Íslands; 5. bekkingar taka þátt í arabísku danspartýii á Garðatorgi 7; 7. bekkingar hitta Gunnar Helgason í ritsmiðju á Bókasafni Garðabæjar og unglingar bæjarins fá að kynnast hugmyndum stærðfræðingsins Einars Þorsteins í Hönnunarsafni Íslands.
Það er Menningar- og safnanefnd sem kostar hátíðina en með skipulagningu fer menningarfulltrúi bæjarins, Ólöf Breiðfjörð
Til að vekja athygli á hátíðinni eru bæjarbúar hvattir til að setja ramma utanum kynningarmyndir sínar á fésbók en rammin finnst undir heitinu Barnamenningarhátíð í Garðabæ þegar skipt er um kynningarmynd