Beint í efni

Umsókn frá HIMA

Málsnúmer 2011026

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

31. fundur

HIMA, tónlistarnámskeið í Garðabæ

Rætt um umsókn um styrk til tónlistarnámskeiðsins HIMA sem er ætlað lengra komnum nemendum í klassískri tónlist. Samþykkt að styrkja verkefnið um 400.000 kr. enda muni fylgja í kjölfarið allt að fernir tónlistarviðburðir fyrir íbúa Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

25. fundur

Menningarfulltrúi kynnti umsókn sem borist hefur frá ungum Garðbæingi þar sem sótt er um fjárhagslegan stuðning til að fjármagna gerð tónlistarmyndbands og útgáfu tónlistar sem tileinkuð verður börnum. Umsókninni fylgdi tengill á vimeo myndband.
Nefndin telur málið vera í anda rafræns viðburðahalds á vegum menningarfulltrúa á þeim tímum sem hendur listamanna varðandi tónlistarsköpun eru bundnar. Samþykkt að veita umsækjanda kr. 150.000 fjárstyrk til verkefnisins gegn því að menningarfulltrúa verði heimilt að birta myndbandið á vimeorásinni Menning í Garðabæ.

Fylgiskjöl