Beint í efni

Þjóðfræðiráðstefna í júní 2022-opnun í Álftaneslaug

Málsnúmer 2109503

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

35. fundur

Menningarfulltrúi sagði frá beiðni skipuleggjenda norrænnar þjóðfræðiráðstefnu, „Norrænt þjóðfræðingaþing“, sem hefst í júní 2022 um að opnunarathöfn ráðstefnunnar fari fram í Álftaneslaug að kvöldi 13. júní 2022.
Menningarfulltrúi og íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar hafa fundað með forsvarsmönnum ráðstefnunnar og eru frekari fundahöld ráðgerð þegar fjöldi ráðstefnugesta liggur fyrir. Reiknað er með að mikill fjöldi þjóðfræðinga frá öllum Norðurlöndunum sæki ráðstefnuna næsta sumar.
Menningar- og safnanefnd fagnar því að leitað sé eftir samstarfi við Garðabæ um opnun ráðstefnunnar í Álftaneslaug enda er þjóðfræðideild Háskóla Íslands í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands um sýningu á safninu, samhliða ráðstefnunni, sem fjallar um sundlaugamenningu á Íslandi.

Fylgiskjöl