Beint í efni

Innleiðing sameiginlegs útlánakerfis bókasafna

Málsnúmer 2012071

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

26. fundur

Margrét Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar, kynnti hugmyndir um sameiginlegt bókasafnsskírteini fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Kópavogur, Hafnarfjörður og Garðabæ hafa verið með sameiginlegt kerfi en nú er lagt upp með að gestir á öllu höfuðborgarsvæðinu geti notað sama skírteinið. Menningar- og safnanefnd leggur til við bæjarráð að Garðabær verði þátttakandi í að taka upp nýtt sameiginlegt bókasafnsskírteini fyrir allt höfuðborgarsvæðið enda hafi það ekki aukinn kostnað í för með sér fyrir sveitarfélagið.

Margrét greindi auk þess frá framkvæmdum á bókasafninu sem hófust í desember en þessi breyting mun skila bókasafninu nokkrum tugum fermetra í aukið húsnæði sem mun nýtast í minni viðburði og bæta aðstöðu gesta.