Beint í efni

27. fundur

11.01.2021
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

27. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

11.01.2021

Kl. 16:15 - 17:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Valborg Ösp Á. Warén - varamaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2101125

01

Bæjarlistamaður og hvatningasjóður- ábendingar

Rætt var um auglýsingu um ábendingar vegna útnefningar bæjarlistamanns og styrkja úr hvatningasjóði fyrir unga listamenn.Menningarfulltrúa falið að auglýsa eftir ábendingum og umsóknum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2101126

02

Safnanótt 2021

Tillaga að vörpun listaverks á fjósið við Vífilsstaði.

Verk eftir listamanninn Hrund Atladóttur kynnt með vörpun á fjósið við Vífilsstaði í huga á safnanótt 2021. Farið yfir hugmyndir um vetrarhátíð 2021 sem miða að ljósadýrð og listaverkum utandyra.

Málsnúmer 2101142

03

Menningardagskrá v. vígslu fjölnota íþróttahúss

Minnisblað menningarfulltrúa vegna undirbúnings menningardagskrár vorið 2022 lagt fram og rætt.

Menningarfulltrúi kynnti minnisblað, dagsett 11.01.2021, vegna undirbúnings Menningarhátíðar.

Málsnúmer 2101137

04

Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021

Menningarfulltrúi greindi frá hugmyndum sínum um árlega hátíð, Barnamenningarhátíð í Garðabæ. Hátíðinni er ætlað að stuðla að enn meiri samvinnu menningarstofnana bæjarins og skólanna og gefa börnum í bæjarfélaginu kost á að taka þátt í að skapa og njóta menningar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2010503

05

Rafrænir menningarviðburðir - Menning í Garðabæ

Menningarfulltrúi sagði frá hugmyndum um áframhaldandi gerð rafræns efnis með yfirskriftinni Menning í Garðabæ en á döfinni er þáttur um Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara og höfund Maxímús sem lést í sumar. Þá verður arkitektúr í Garðabæ gerð skil í samvinnu við Pétur Ármannsson. Nefndarmeðlimir bentu á góðar hugmyndir, t.d. þátt um Krók á Garðaholti.

Málsnúmer 2101141

06

Önnur menningarmál

a) Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs sagði frá breytingum á húsnæði bókasafns og vinnu við að koma stafrænu útlánakerfi í gagnið.

b) Fundur með mennta- og menningarmálaráðherra og forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs vegna samnings um Hönnunarsafn Íslands fer fram föstudaginn 15. janúar.

c)Sagt frá framvindu mála endurnýjun samstarfssamninga við Kvennakór Garðabæjar og Grósku.

d) Menningarfulltrúi sagði frá dagská fyrir skólabörn sem hægt er að framkvæma á vorönn.