Vetrarhátíð 2021-yfirferð
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
28. fundur
Menningarfulltrúi segir frá vel heppnaðri Vetrarhátíð sem fór fram 4. - 7. febrúar. Sýning á ljóskerum fyrir framan Hönnunarsafn fór fram alla dagana, þann 5. febrúar var ljóslistaverki eftir Hrund Atladóttur ásamt hljóðverki eftir Geir Helga Birgisson varpað á Búshúsið á Vífilsstöðum með leyfi frá Landsspítala. Bein útsending var frá viðburðinum sem stóð aðeins yfir í eitt kvöld enda mikil og dýr framkvæmd. Gunni Rich var menningarfulltrúa innan handar. Fjöldi fólks lagði leið sína á Vífilsstaði og almenn ánægja virðist vera með gjörninginn. Laugardaginn 6. febrúar fóru fram tvær svokallaðar berklagöngur með göngugarpinum Einari Skúlasyni sem gekk með tvo tuttumanna hópa um útivistarslóðir við berklahælið. Sunnudaginn 7. febrúar fór svo höfundurinn Kristín Helga Gunnarsdóttir með 20 fullorðna og um 15 börn í göngu um söguslóðir bóka sinna.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
27. fundur
Tillaga að vörpun listaverks á fjósið við Vífilsstaði.
Verk eftir listamanninn Hrund Atladóttur kynnt með vörpun á fjósið við Vífilsstaði í huga á safnanótt 2021. Farið yfir hugmyndir um vetrarhátíð 2021 sem miða að ljósadýrð og listaverkum utandyra.