Beint í efni

Önnur menningarmál

Málsnúmer 2101141

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

29. fundur

Menningarfulltrúi gerði grein fyrir fyrirlestri sem hún hélt fyrir nema Háskóla Íslands í safnafræði þar sem menningarstarf í Garðabæ var kynnt.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

28. fundur

a)Menningarfulltrúi segir frá móttöku alls 735 barna úr grunnskólum Garðabæjar í Tónlistarskóla Garðabæjar í janúar á mjög skemmtilega og vandaða jazztónleika.
b) Rætt um Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2021. Í febrúar hefst fyrsti liður hátíðarinnar sem felst í leirsmiðjum barna á miðstigi grunnskóla Garðabæjar en verk barnanna verða sýnd á Barnamenningarhátíð í apríl. Ítarleg dagskrá hátíðarinnar kynnt á næsta fundi nefndar.
c) Auglýst verður eftir umsóknum um styrki fyrir unga listamenn í Garðabæ.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

27. fundur

a) Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs sagði frá breytingum á húsnæði bókasafns og vinnu við að koma stafrænu útlánakerfi í gagnið.
b) Fundur með mennta- og menningarmálaráðherra og forstöðumanns fræðslu- og menningarsviðs vegna samnings um Hönnunarsafn Íslands fer fram föstudaginn 15. janúar.
c)Sagt frá framvindu mála endurnýjun samstarfssamninga við Kvennakór Garðabæjar og Grósku.
d) Menningarfulltrúi sagði frá dagská fyrir skólabörn sem hægt er að framkvæma á vorönn.